Morgunblaðið - 23.09.2008, Side 31

Morgunblaðið - 23.09.2008, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 31 ✝ Þórey BryndísMagnúsdóttir fæddist á Sandhól- um í Saurbæjar- hreppi í Eyjafirði 28. júní 1922. Hún lést á dvalarheim- ilinu Hlíð á Akur- eyri 17. september síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Magnús Kristjáns- son, f. á Kerhóli í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði 7. júní 1884, d. 24. sept- ember 1967, og Rut Þórey Lárus- dóttir, f. á Tunguhálsi í Skaga- firði 23. nóvember 1887, d. á Sandhólum 25. desember 1924. Börn þeirra auk Bryndísar voru Jónheiður Pálmey, f. á Sand- hólum 11. nóvember 1916, d. 18. maí 1929, Hermann Óli Þór, f. á Sandhólum 16. júní 1918, d. á Akureyri 26. apríl 1942, og Benna Guðborg, f. á Akureyri 3. júní 1924, d. 9. júní 1943. Hálf- bróðir Bryndísar, samfeðra, er Jón Heiðar, f. á Akureyri 13. Akureyri 1. nóvember 1972. 4) Ólafur Magnús, f. á Akureyri 3. desember 1947, maki Guðbjörg Eygló Ingólfsdóttir, f. 28. apríl 1949. Börn þeirra Kristjana Þór- ey, f. í Vestmannaeyjum 2. mars 1967, Bryndís Huld, f. í Vest- mannaeyjum 12. apríl 1971, og Birgir Freyr, f. í Vestmanna- eyjum 16. febrúar 1979. 5) Sjöfn Aðalbjörg, f. á Akureyri 27. nóv- ember 1949, maki Steinar Hilm- arsson, f. 16. ágúst 1948. Synir hennar Kjartan Freyr og Geir Vilhjálmssynir, fæddir á Ak- ureyri 3. apríl 1971. 6) Fjóla Huld, f. á Akureyri 19. ágúst 1952. Maki Ólafur Andri Thorla- cius, f. 24. september 1954, þeirra synir Andri, f. á Akureyri 27. janúar 1989, og Sindri, f. á Akureyri 19. júní 1991. 7) Harpa Dröfn, f. á Akureyri 14. maí 1956, maki Benedikt Bjarni Sveinbjörnsson, f. 21. mars 1952. Þau skildu. Synir þeirra Svein- björn, f. á Akureyri 2. desember 1976, og Andri Steinn, f. í Reykjavík 31. mars 1981. 8) Tryggvi Gestur, f. á Akureyri 2. september 1957, dóttir hans Sig- ríður Ruth, f. á Akureyri 7. sept- ember 1983. Barnabarnabörnin eru tuttugu og fjögur. Útför Bryndísar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. mars 1935. Eigin- maður Bryndísar var Aðalsteinn Ólafsson, f. á Gilsá í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði 26. febrúar 1920, d. 21. október 1994. Börn þeirra eru 1) Aðalsteinn, f. á Akureyri 12. maí 1942, d. 29. maí 1942. 2) Bylgja Ruth, f. á Gnúpufelli í í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði 4. október 1943, maki Sigurður Anton Friðþjófsson, f. í Selvík á Hauganesi í Árskógshreppi í Eyjafirði 4. ágúst 1942, d. 3. júní 1980. Þau skildu. Synir þeirra eru Friðþjófur Ísfeld, f. á Ak- ureyri 7. maí 1967, og Brynjar Aðalsteinn, f. á Akureyri 2. des- ember 1969. 3) Hermann Ægir, f. á Sandhólum í Eyjafirði 21. apríl 1945, maki Margrét Arngríms- dóttir, f. 25. desember 1946, d. 29. nóvember 2004. Börn þeirra Díana Bryndís, f. á Akureyri 13. maí 1969, og Víðir Már, f. á Mig langar að minnast yndis- legrar konu sem kom inn í líf mitt þegar ég var 16 ára gömul. Ég kallaði hana alltaf ömmu Dísu, og þó að hún ekki hafi verið amma mín leit ég aldrei á hana öðruvísi. Amma Dísa tók á móti mér opnum örmum er ég kom inn á heimili hennar ófrísk að hennar fyrsta langömmubarni. Kærleikur, gleði, væntumþykja og virðing var það sem ég fékk frá henni og afa Steina. Ég kom af heimili þar sem veraldleg gæði voru mikil. Ríki- dæmi hennar var hins vegar kær- leikur og gleði en ekki dauðir hlut- ir. Að sitja með henni og horfa í hennar fallegu augu, sem lýstu af birtu, var það sem ég þurfti á að halda, því það var jú erfitt að vera fjarri foreldrum sínum aðeins 17 ára móðir. Hún studdi mig í gegn- um þessar breytingar í lífi mínu og aldrei skipti hún sér af uppeldi litlu langömmustelpunnar sinnar. Ég gaf henni þrjú barnabarnabörn sem litu mikið upp til hennar og höfðu mikla gleði af henni. Amma Dísa hafði í mörg ár átt við heilsu- leysi að stríða ásamt því að hafa gengið í gegnum erfiðleika. Hún ól upp stóran barnahóp og kom að uppeldi margra barnabarna sinna. Hún var stóri kletturinn í lífi okkar allra og alltaf var mann- margt á heimili þeirra hjóna og varla leið sá dagur að ég kæmi ekki í Smárahlíðina. Að sitja við eldhúsborð þeirra og spjalla um allt mögulegt er nokkuð sem ég aldrei gleymi. Afi Steini hafði unun af því að segja mér sög- ur, fara með ljóð og syngja fyrir mig. Ömmu Dísu fannst þetta nú ekki sniðugt og sagði alltaf: „Vertu nú ekki að þreyta stelpuna með þessari vitleysu, hún hefur ekkert gaman af þessu!“ Eftir margra ára samveru við þau fluttum við frá Akureyri til Reykjavíkur. Og ein- hvern veginn er það nú svo, að þá sem manni þykir vænt um byrjar maður að vanrækja í skjóli fjar- lægðar og lífsgæðakapphlaups. Síðastliðið vor átti fjölskyldan er- indi til Akureyrar en þá var amma Dísa komin á hjúkrunarheimilið Hlíð. Það var mín síðasta stund með þessari miklu kjarnakonu. Þrátt fyrir mikil veikindi geisl- aði hún eins og sólin, svo fín og fal- leg, nýkomin úr lagningu og með varalit á vörum. Hópurinn var stór sem kom í heimsókn og hún áttaði sig að sjálfsögðu ekki alveg á því hver var hver í byrjun, en nöfnin þekkti hún vel. Ég sat og það eina sem ég hugsaði um var hversu óskaplega falleg hún væri. Þegar ég tók utan um hana og kyssti spurði ég hana hvort hún vissi ekki alveg hver ég væri. Hún brosti út að eyrum og hló og sagði eftir smástund: „Jú, er þetta ekki Kolla?“ Gleðin var mikil í hjörtum okkar allra þegar við fórum frá henni, þó að við hugsuðum öll að þetta hefði sennilega verið okkar síðasta stund með henni. Ég veit að þegar kallið kom hefur afi Steini verið tilbúinn með útréttan arminn og faðmað hana og sungið fyrir hana lagið sem hann söng svo oft fyrir hana og ég elskaði að hlusta á: „Vertu hjá mér Dísa með- an kvöldsins klukkur klingja.“ Elsku Bylgja mín, ég veit að söknuður þinn og tómleiki verður mikill, við vottum þér og öðrum að- standendum okkar dýpstu samúð. Kolbrún Kjartansdóttir, Bjarndís Líf, Sigurður Anton og Bjartur Elí Friðþjófsbörn. Þórey Bryndís Magnúsdóttir hennar og fyrrverandi sambýlis- manni, Sigurgeiri, mína dýpstu sam- úð. Anna Ingólfs. Einstaklega viðkunnanleg, með þægilega nærveru og gott lunderni. Þessar lyndiseinkunnir eru þær sem fyrst koma í hugann þegar Maríu Báru Hilmarsdóttur er minnst. Henni kynntumst við í gegnum starf í yngri flokkum kvennaknattspyrn- unnar í HK. Mikið og gott jafnaðar- geð prýddi Maríu öðru fremur þann- ig að litlir nýgræðingar í fótbolta, um 10 ára aldurinn, fundu lítt fyrir því hversu úrslitin voru mótdræg og veðrið svakalegt í miklu vatnsveðri á knattspyrnumóti í Vestmannaeyjum fyrir fimm árum. Árið 2003 fór hún fremst í fararstjórn með 5. flokki HK þar sem 1993- og 1994-árgangar voru á ferð, en dóttir okkar, Ingi- björg, var að stíga þar sín fyrstu skref á fótboltamóti, svo við nutum góðs af. Óhætt er að fullyrða, að öðr- um ólöstuðum, að þessir árgangar og foreldrar þeirra hafi notið ríku- lega að hafa Maríu Báru í forystu í foreldraráði á þessum árum enda þurfti vart aðra til þegar hún sinnti þessu, slíkur var dugnaðurinn. Verk- efnin leyst með bros á vör og hlýju viðmóti, aldrei með frekju eða fyr- irgangi. Kannski má segja að fram- ganga hennar í flokksstarfi 5. flokks hafi svo náð lengst þegar hún ann- aðist um flokkinn að öllu leyti ári síð- ar, 2004, á fótboltamóti á Siglufirði í forföllum þjálfarans. Því verki skil- aði hún með sóma eins og öðrum. Samleið okkar varð á ný náin þeg- ar hún svo tók nýtt skref í störfum í þágu kvennaknattspyrnunnar hjá HK er hún tók að sér þjálfun 7. flokks haustið 2006 með árgöngum 1999 og 2000 þar sem Dóra dóttir okkar naut starfskrafta Maríu. Fá ár voru þá liðin frá því að 7. flokkur var stofnaður í HK þannig að María Bára átti þar hlut að brautryðjanda- starfi í því að efla flokkinn og fá nýja liðsmenn til leiks. Eins og vænta mátti af henni tókst svo vel til í þessu kynningarstarfi og eftirfylgni að þegar 1999-árgangurinn gekk upp í 6. flokk ári síðar varð hann fjöl- mennasti 6. flokkur sem HK hefur eignast. Svo vel hlúði hún að ný- græðingunum að allir fengu að taka jafnan þátt og þroskast áfram í fót- boltanum og ílentust fyrir vikið. Fyrir utan hennar góðu lund verð- ur ekki undan því vikist að nefna að hana prýddi alveg sérstaklega mikil greiðvikni. Til hennar mátti leita með aðskiljanlegustu verkefni sem hún leysti öll af miklum sóma. Má sem góð dæmi nefna að hún hljóp í skarð þjálfara 6. flokks og annaðist um liðsstjórn 1999-árgangsins á Símamóti Breiðabliks um miðjan júlí síðasta. Og eins fór hún í lok júlí sem fararstjóri til Danmerkur með 1992- og 1993-árgöngunum, í hreinni greiðasemi við stelpurnar og for- eldra þeirra sem áttu í erfiðleikum með að manna fararstjórnina. Með þessum fáu orðum viljum við minnast þessa góða félaga og þakka fyrir samferðina í gegnum yngri- flokkastarf HK. Jafnframt vottum við dætrum hennar, þeim Sylvíu og Kristrúnu, okkar dýpstu samúð, sem og foreldrum hennar og öðrum að- standendum. Björn L. Bergsson, Soffía Jónsdóttir. Við fráfall Maríu Báru hefur myndast stórt skarð í hóp þeirra sem unnið hafa við barna- og ung- lingastarf innan HK. Undanfarin ár hefur líf Maríu Báru verið samofið félaginu með margvíslegum hætti. Hún var mörgum kunn fyrir óeig- ingjarnt og ósérhlífið starf að fé- lagsmálum knattspyrnudeildar HK þar sem dætur hennar, þær Sylvía og Kristrún, stunduðu knattspyrnu. Hún var áhugasamt foreldri og starfaði lengi í flokksráðum kvenna- flokkanna. Seinni ár hafði María Bára komið með ákveðnum hætti inn í störf barna- og unglingaráðs og sinnt þar ábyrgðarstöðu af miklum dugnaði og áhuga. Þegar þjálfari þurfti á aðstoð að halda stýrði hún oft leikjum með svo góðum árangri að eftir var tekið. Eitt haustið, þegar það vantaði þjálf- ara fyrir yngstu stelpurnar, þá skráði María Bára sig á þjálfara- námskeið og tók að sér þjálfun þeirra. Með ljúfmennsku sinni og glaðlyndi náði hún góðu sambandi við stelpurnar. Þetta lýsir vel holl- ustu hennar við félagið. Hún hefur farið í margar ferðir sem fararstjóri með stelpunum bæði innan- og utanlands. Fyrir nokkrum vikum fór hún sem fararstjóri með hóp HK-stelpna til Danmerkur. Það var gott að leita til Maríu Báru því hún var alltaf tilbúin að leggja sitt af mörkum með bros á vör. Minningin um góða manneskju og félaga mun lifa með okkur. Við minnumst hennar með spékoppana og brosið sitt bjarta. Allir sem störf- uðu með Maríu Báru bera henni vel söguna. Hún var ljúf, dugleg, ákveð- in og hafði stórt HK-hjarta. Hún mætti á flesta HK-leiki ásamt fé- lögum sínum á meðan heilsan leyfði. Síðasta hlutverk hennar fyrir HK var að sjá um lukkubörnin á meist- araflokksleikjum karla í sumar. Það gerði hún með sóma eins og allt ann- að. Mikil sjálfboðavinna fer fram inn- an knattspyrnudeildar HK og þar hefur María Bára átt stóran hlut. Við kveðjum Maríu Báru með söknuði og þökk fyrir hennar ómet- anlega framlag til HK. Við HK-ingar viljum votta dætr- um Maríu Báru, foreldrum og öðrum ástvinum okkar dýpstu samúð. Hvíl í friði. F.h. knattspyrnudeildar HK, Jóna Björg Jónsdóttir og Ásta Gunnarsdóttir. 200 ára afmæli Reykjavíkur var dagurinn, dagurinn sem Mæja Bára kom inn í líf okkar þegar vegir henn- ar og Geira bróður lágu saman. Mæju mágkonu kallaði ég hana upp frá því. Ég var einungis um 12 ára gömul og því langt frá því að eiga eitthvað sameiginlegt með þessum nýja fjölskyldumeðlim, en ég leit upp til hennar og ákvað snemma að læra sjúkraliðann og vera eins góð í faginu og Mæja mágkona. Ég hafði það af, en eins og Mæja gafst ég upp í því starfi enda illa launað og álagið ekki þess virði. Mæja lærði þá mál- arann eftir margra ára starf sem sjúkraliði og ég hóf nám í þroska- þjálfafræðum. Þegar fram liðu stundir og ég varð fullorðin eins og Mæja eignuðumst við börn sem eru á svipuðu reki í dag. Vinskapur okkar hófst í raun ekki fyrr en Geiri og Mæja fluttu aftur til Reykjavíkur eftir að hafa búið í Fellabæ svo lengi. Meiri um- gangur var því á milli okkar með til- heyrandi matarboðum og nú síðast þegar við eyddum páskunum saman eins og svo oft áður. Síðustu máltíð- ina áttum við svo saman hjá mömmu og pabba í Hamraborginni nú í byrj- un sumars. Að vera í þeirri stöðu að vera ein- stæð móður var ekki vandamál, því með aðstoð Mæju og Geira átti ég öruggt skjól fyrir dóttur mína þegar á þurfti að halda og ég var að vinna eða upptekin í námi. Fyrir um tveimur árum skildi leið- ir Mæju og Geira, en þau héldu vin- skap og það gerði ég líka. Við töl- uðum saman alla jafna að minnsta kosti einu sinni í viku, stundum oft- ar, og ekki lá hún á liði sínu þegar mig vantaði aðstoð við málningar- vinnuna heima hjá mér. Síðustu tvö ár dvaldi Dabban mín í góðu yfirlæti hjá Mæju og stelp- unum aðra hvora helgi vegna vinnu í Kópavogi og þær frænkur hafa verið duglegar að eyða saman tíma, ýmist á mínu heimili eða hjá Mæju mág- konu, tíma sem hefur án efa verið ómetanlegur fyrir þær sem okkur. Dætur okkar hafa nú byggt upp ævarandi vinskap, eru samheldnar og góðar vinkonur sem er algjörlega ómetanlegt þegar slíkur harmur ber að dyrum og koma án efa til með að styðja hver aðra um ókomna fram- tíð. Elsku Sylvía, Kristrún mín, Geiri og aðrir fjölskyldumeðlimir, vinir og kunningjar, hugur minn er hjá ykk- ur. Minningin lifir. Hinsta kveðja, Sólborg (Solla). Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Elskuleg systir okkar og mágkona, HULDA BERGÞÓRSDÓTTIR, Nökkvavogi 1, andaðist miðvikudaginn 17. september á Droplaugarstöðum. Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 26. september kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Ragnhildur Bergþórsdóttir, Atli Elíasson, Gunnar Bergþórsson, Þórunn Jónsdóttir, Anny Bergþórsson. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför SKJALDAR STEFÁNSSONAR fyrrverandi útibússtjóra, Sunnubraut 17, Búðardal. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Kristín Árnadóttir, Þórhallur Stefán Skjaldarson, Pálína Hrönn Skjaldardóttir, Hafliði Kristinsson, Stefán Skjaldarson, Ingibjörg Eggertsdóttir, Árni Óttarr Skjaldarson, Guðrún P. Sveinsdóttir, Skjöldur Orri Skjaldarson, Carolin A. Barre-Schmidt, Brynja Stefánsdóttir, Kjartan Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.