Morgunblaðið - 23.09.2008, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 23.09.2008, Qupperneq 36
... ákveðin tegund af Íslendingi sem er allt- af mjög grófur í kjaftinum, stuðar alla en veit alveg af því… 40 » reykjavíkreykjavík GUNNLAUGUR Egilsson dansari og danshöfundur er nýkominn frá Búdapest þar sem hann kom fram á menningarhátíðinni Szhiget. „Það var svolítið öðruvísi að dansa fyrir drukkna unglinga á útihátíð með Iron Maiden nokkra metra í burtu,“ segir hann. Næsta verkefni á dagskrá Gunn- laugs er af allt öðrum toga, en það er fyrsta sýning Íslenska dans- flokksins í vetur. Duo samanstend- ur af fjórum verkum eftir jafn- marga höfunda og eins og nafnið bendir til er það safn dúetta. Í verki Gunnlaugs verða tveir dansarar á sviðinu, en kvikmynd sem spilar saman við hreyfingar þeirra leikur líka stórt hlutverk. „Þetta er óður til skuggans. Ég er að reyna að setja dans og kvik- mynd saman á sviði án þess að ann- að taki hitt yfir.“ Gunnlaugur er á kafi núna í því að ganga frá kvikmyndaþætti sýn- ingarinnar með Sverri Kristjáns- syni klippara, sem meðal annars hefur unnið við Næturvaktina og Dagvaktina. „Við erum búnir að vinna þetta bæði sem dansverk og stuttmynd. Ég samdi dansinn fyrst, en nú þarf ég að fara aftur inn í dansverkið svo það passi við kvik- myndina,“ segir Gunnlaugur sem hefur mjög frjálsar hendur með breytingar þar sem hann semur einnig tónlistina við verkið. gunnhildur@mbl.is Óður til skuggans Skuggi Gunnlaugur vinnur bæði að dansverki og stuttmynd í einu. Í HNOTSKURN » Í Duo eiga þau Lára Stef-ánsdóttir, Peter Anderson og Sveinbjörg Þórhallsdóttir verk auk Gunnlaugs. Fyrsta sýning er 16. október. » Aðalheiður Halldórsdóttirog Steve Lorenz dansa í verki Gunnlaugs.  Íslenskir tón- listarunnendur bíða margir hverjir spenntir eftir annarri plötu Sprengju- hallarinnar sem væntanleg er í verslanir um mánaðamótin október/nóvember, en fyrsta plata sveitarinnar, Tím- arnir okkar, kom út í október í fyrra og sló rækilega í gegn. Fregnir herma að nýja platan muni heita Bestu kveðjur, sem verður að teljast bæði fallegt og vinalegt nafn, og um leið sérlega söluvæn- legt í jólapakkana. Þá hefur einnig heyrst að eitt lag á plötunni muni bera hið magnaða nafn „Með seríós í skálinni við smælum endalaust“ sem er augljós afbökun á nafni Sig- ur Rósar-plötunnar Með suð í eyr- um við spilum endalaust. Bestu kveðjur frá Sprengjuhöllinni  Fjölmiðlaskæra Stuðmannanna Egils Ólafssonar og Jakobs Frí- manns Magnússonar um stöðu þess fyrrnefnda í hljómsveitinni koðnaði á einhvern undarlegan hátt niður áður en niðurstaða fékkst í málið. Hangir hún því enn í lausu lofti, spurningin um framtíð þessarar dáðustu hljómsveitar landsins. En þá vaknar önnur spurning: Hver kæmi í Stuðmanna stað, færi svo að þeir legðu upp laupana? Beinast liggur við að líta til drengjanna í Baggalúti sem njóta æ meiri hylli landsmanna. Baggalútur hefur varla sent frá sér smáskífu án þess að hún sé spiluð í tætlur á útvarps- stöðvunum og liðsmenn sveitarinn- ar eru orðnir heimsfrægir á Íslandi og vinsælir eftir því í álitsgreinum og -dálkum dagblaðanna. Er í raun eitthvað því til fyrirstöðu að sveitin taki sér stöðu hljómsveitar allra landsmanna? Í raun aðeins eitt; Baggalútur hefur ekki enn afrekað að gera kvikmynd. Er það ekki næsta skref hljómsveitarinnar? Arftakar Stuðmanna? Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is BOYS in a band hafði æft í mánuð þegar þeir ákváðu að taka þátt í færeyskum riðli hinnar alþjóðlegu hljómsveitakeppni Global Battle of the Bands haustið 2006. Framkoma hennar þar sló í gegn hjá áhorf- endum og þó hún hafi ekki komist áfram í aðalkeppnina í Lundúnum það árið fór hún þangað árið eftir – og gerði sér lítið fyrir og sigraði. Óhætt er að segja að Franz Ferdinand-skotið æringjarokk BI- AB hafi komið eins og skrattinn úr sauðarleggnum inn í færeyskt tón- listarlíf en helsti styrkur sveit- arinnar er þó hversu erfitt er að pinna hana niður, hvort heldur tón- listarlega eða ímyndarlega. Með- limir líta ýmist út eins og feimnir indíkrakkar eða rótarar fyrir Pan- tera og Heri, hljómborðsleikarinn, lítur út eins og Guð má vita hvað. Fyrsta plata sveitarinnar heitir Black Diamond Train og er um- slagið eins og ódýr safnplata með Allman Brothers – í engu samræmi við innihaldið. BIAB fer eigin leið- ir, svo sannarlega, og nægir að líta til furðulegrar nafngiftarinnar því til staðfestingar. Færeyskir? Sveitin var stödd hér á landi um helgina til að taka upp myndband við lagið „Beyond Communication“ og settist blaðamaður niður með Pætri Zachariassen, söngvara og gítarleikara og Heini Niclasen, gít- arleikara. Pætur segir að gróskan mikla sem viðgekkst í Götu á sínum tíma, sena sem gat af sér Eivöru Páls- dóttur, Clickhaze og fleiri, hafi haft mikil áhrif á sig og vini sína. „Starfsemin var gríðarlega öflug og grasrótin var virkjuð með tón- leikahaldi og alls kyns uppá- komum. Við drukkum þetta í okk- ur en fyrir ca tveimur árum síðan settumst við niður og ákváðum að gera alvöru úr því að stofna hljóm- sveit.“ Pætur hlær að því að dönskum gagnrýnendum hafi ekki þótt sveit- in nægilega færeysk. „Þeir vilja að við förum í brúnar ullarpeysur og dönsum hring- dansa. Þetta er auðvitað fáránlegt, hljómsveitir draga áhrif alls staðar að og ef fólk hlustar vel má vel heyra að þetta er færeysk hljóm- sveit. Uppruninn smýgur alltaf út í tónlistina einhvern veginn.“ BIAB er nú með íslenskan um- boðsmann og hefur spilað ansi víða á undanförnum árum. Hún hefur t.a.m. leikið hér á landi, á Iceland Airwaves, og hefur komið fram á Hróarskeldu og á SXSW hátíðinni í Bandaríkjunum. BIAB koma fram á Iceland Airwaves í næsta mánuði og munu halda fleiri tónleika þar í kring. Túr um Bretland er svo áætlaður í nóvember en á næsta ári mun sveitin svo herja á Skandinavíu og Bretland með Black Diamond Tra- in í farteskinu en upptökustjóri hennar er Ken Thomas, sá hinn sami og upptökustýrði Ágætis byrj- un Sigur Rósar. Strákarnir stofnuðu hljómsveit Efnilegasta hljómsveit Færeyja, Boys in a band, sendir frá sér sína fyrstu plötu Færeyskir Boys in a band er eiturhress á sviði og þarf engan hringdans til að fá fólkið með sér. BOYS in a band báru með sér ferska strauma inn í færeyskt tónlistarlíf á sínum tíma. Áhersla hafði verið á melan- kólískt og stórbrotið drama- rokk en BIAB leika hins vegar sprellfjörugt indírokk þar sem áherslan liggur á ástríðu og æði fremur en hljóm- og skala- kunnáttu. Þessari óvæntu „léttúð“ var vel tekið í eyjun- um og nýtur sveitin nú mikilla vinsælda þar. Ferskur tónn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.