Morgunblaðið - 23.09.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.09.2008, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA - H.G.G., POPPLAND -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS GUARDIAN - S.V. MORGUNBLAÐIÐ SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI -DV -S.V., MBL CHARLIE BARTLETT kl. 8:10 - 10:30 B.i. 12 ára JOURNEY TO THE CENTER... kl. 5:50 3D - 8 3D - 10:10 3D LEYFÐ 3D - DIGITAL TROPIC THUNDER kl. 8:10 - 10:30 B.i. 16 ára SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 - 8 LEYFÐ DARK KNIGHT kl. 5:30 - 10:10 B.i. 12 ára DARK KNIGHT kl. 5:50 - 8:40 B.i. 12 ára LÚXUS VIP DEATH RACE kl. 8:20 - 10:30 B.i. 16 ára STAR WARS: C. W. kl. 5:50 LEYFÐ WALL • E m/ísl. tali kl. 5:50 LEYFÐ SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI Þegar Charlie Bartlett talar þá hlusta allir! CHARLIE BARTLETT kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára JOURNEY TO THE C... kl. 63D - 8:103D - 10:203D LEYFÐ 3D - DIGITAL SMART PEOPLE kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára GET SMART kl. 5:50 LEYFÐ DIGITAL SÝND Í ÁLFABAKKA STÆRSTA OPNUN Á ÍSLANDI FYRR OG SÍÐAR. YFIR 69.000 MANNS EIN BESTA MYND ÁRSINS! VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA DENNIS QUAID, SARAH JESSICA PARKER, ELLEN PAGE, OG THOMAS HADEN CHURCH Frábær gamanmynd frá framleiðendum Sideways. SÝND Í KRINGLUNNI “FYNDIN OG SKEMMTILEG MYND FYRIR UNGT FÓLK SEM OG ELDRA. ROBERT DOWNEY ER FÆDDUR SENUÞJÓFUR!” -TOMMI - KVIKMYNDIR.IS Mér fannst ekki margt byltingarkennt við þennanfyrsta þátt og persónurnar voru helst til hefðbundn- ar, eitthvað sem tókst að forðast í Pressunni,“ segir Ari Eldjárn, textasmiður og handritshöf- undur um fyrsta þátt Svartra engla. „Styrkur þessa þáttar er hins vegar að það var gott flæði í honum; mörg hvörf í sögunni og nóg að gera. Alveg þess virði að glápa á. Ég er samt almennt hlynntur því að hafa úrval í dagskrárflórunni og nóg af meginstraums-dóti og bíð t.d. enn spenntur eftir sápuóperu sem fjallar um fjölskyldu á Arnarnesinu og daglegt líf hennar,“ segir Ari. Hvað Dagvaktina varðar segist Ari hafa verið mjög ánægður með fyrsta þáttinn. „Allur fyrsti þátturinn er kynning og leiðir að niður- stöðu sem maður veit fyrirfram hver er, en samt er maður spenntur allan tímann. Persónurnar eru iðandi af lífi og ég man ekki eftir að hafa elskað að hata nokkurn mann jafn mikið og Georg. Tempóið er annað og mér fannst þetta „filmulúkk“ æði- legt. Íslendingar elska frasa og þessir þættir veita Sódómu, Nýju lífi, Með allt á hreinu og Stellu í Orlofi harða sam- keppni í þeim geiranum,“ segir Ari sem mun fylgjast spenntur með báðum þáttunum. Gott flæði og góðir frasar Ari Eldjárn Góð vakt en umdeildir Fyrstu þættir tveggja nýrra íslenskra sjón- varpsþáttaraða voru sýndir á sunnudagskvöldið. Jóhann Bjarni Kolbeinsson heyrði í nokkrum vel völdum einstaklingum og fékk álit þeirra á Svörtum englum og Dagvaktinni, þótt þeir hafi að vísu ekki allir séð síðarnefnda þáttinn. Dagvaktin Fær mjög góða dóma hjá þeim viðmælendum sem sáu þáttinn á sunnudagskvöldið.Svartir englar Fyrsti þátturinn lagðist misjafnlega í viðmælendur. Ég var svolítið að reyna að vera neikvæð og segja við sjálfa migað við gætum ekkert búið til einhverja sakamálaþætti,“ segir Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur, sem sá Svarta engla en ekki Dagvaktina. „En mér leiddist ekki, og mér finnst spenn- andi að fá að vita meira um örlög þessa manns.“ Elísabet segist hafa verið mjög ánægð með frammistöðu leikaranna, þá sérstaklega Sól- veigar Arnarsdóttur. „Hlutverk Steins Ármanns var rosalega klisjukennt, en samt mjög skýrt. Hann er svona ákveðin tegund af Íslendingi sem er allt- af mjög grófur í kjaftinum, stuðar alla en veit alveg af því,“ segir Elísabet sem var þó ekki ánægð með allt sem fyrir augu bar. „Ég var svolítið pirruð þegar Litháarnir komu. Var verið að búa til einhvern raunveruleika, eða er þetta raunveruleikinn? Og þótt raunveruleikinn sé svona, þarf þá endilega að nota hann? Misstum við alveg af íslensku krimmunum, af því það voru komnir nokkrir Litháar hingað þegar við fórum að gera bíómyndir?“ spyr Elísa- bet. „Og af hverju þarf að vera að sýna ofbeldissenur og sam- farasenur? Þær þurfa að minnsta kosti að vera góðar, maður bara ælir þegar það er verið að sýna fólk kyssast. Maður sér ekki góðan koss lengur. Af hverju er ekki bara hægt að sleppa þessu? Og það sama gildir um ofbeldið, þetta þarf að vera svolítið flott og öðru- vísi.“ Almennt segist Elísabet þó hafa verið frekar sátt við þennan fyrsta þátt Svartra engla, og hún ætlar að fylgjast með til enda. Leiddist ekki Elísabet Jökulsdóttir Þetta er bara svona vinnustaðadrama,“ segir Jón Atli Jónasson,leikskáld, sem sá bara Svarta engla á sunnudagskvöldið. „Ég var að spá hvort það væri ekki gaman að gera þáttaröðina Svartir smiðir um tvo menn sem eru að reisa einbýlishús, og svo spyrja þeir hvor annan hvort sökkullinn sé ekki í lagi, eða hvort þeir steypi ekki plötuna yfir eða hvort þeir hafi gleymt pottinum. Svona vinnustaðagrín,“ segir Jón Atli. „En nei nei, þetta var bara fínt og það var gaman að sjá þetta. Þetta er bara eins og Tagg- art á íslensku. Ég var einn þeirra sem skrifuðu handritið að Mýrinni þannig að ég tók þetta svolítið út, hvernig löggur tala og svona. En þetta var alveg fínt,“ segir Jón Atli sem var sáttur við frammistöðu leikaranna. „Mér fannst Maggi Jóns og Helgi Björns mjög góðir, enda eru þeir fínir leikarar sem standa sig vel í öllu.“ Jón Atli segir þó sjaldnast neitt nýtt undir sólinni í þáttum sem þessum. „Þetta efni er alltaf svona. Það er einhver drepinn, og svo fer allt á fullt að reyna að finna út hvernig hann var drepinn og svona. Formið býður bara upp á þetta. En ég held að það sé bara um að gera að halda áfram að gera ís- lenskt efni, og ef það er einhver framleiðandi þarna úti sem vill gera Svarta smiði get ég tekið að mér að skrifa handritið, eða Hressa pípulagningamenn – þessar illa launuðu starfsstéttir í landinu, smiðir, pípulagningamenn og löggur, við getum fengið að kynnast lífi þeirra og draumum,“ segir Jón Atli og hlær. Taggart á íslensku Jón Atli Jónasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.