Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.01.1914, Qupperneq 8

Skinfaxi - 01.01.1914, Qupperneq 8
8 SKINFAXI Upphafsmennirnir. „Sá veldur miklu sem upphaíinu veld- ur“ segir máltækið, og er það jafnsanna, hvort heldur er er um gott eða ilt. Þess vegna pykir Skinfaxa pað við eiga, er hann nú tekur að flytja myndir, að skipa í öndvegið upphafsmönnum Ung- mennafélaganna, en það eru þeir Jóhannes Jósefsson og Þórhallur Bjarnarson. Þeir höfðu báðir farið utan, Þórhallur til Danmerkur, Jóhannes til Noregs. Oefað hefir þeim í þeirri för báðum aukist vilji og áhugi til þess að geta orðið að liði heima, og þegar fundum þeirra ber saman aítur, kviknar þessi hugsun i milli þeirra, að reyna að fá unga menn í félag til þess að verða sjálfum sér og öðrum nýtari menn. Eftir all-ítarlegar bollaleggingar um þetta sín í milli, stefndu þeir álitlegustu kunn- ingjum sínum og vinum til fundar við sig á nýjársdag 1906, sögðu þeir frá því sem i efni væri, og var því tekið vel. Þarna voru þeir 12 saman. En 7. janúar 1906, er Ungmenna- félag Akureyr- ar stofnað af 16 inönnum, og með sömu aðalalriðum í lögum og enn eru hjá Ung- mennafélögun- um. Mun Þór- hallur hafa átt bróðurpart í tillögum,en Jó- hannes fram- kvæmdir. Þegar í upp- Jóliannes Jðsefsson. hafi tóku þeir félagar að ræða hin og þessi alvörumál sín á milli og rita blað er lesið var a fundum. Þá gengu þeir að leikum, islenskri og grískri glímu og tækjalitlum fimleikum. Loks voru góðir menn fengn- ir til að fiytja fræðandi og vekj- andi fyr- irlestra fyrir fél- agsmenn og hvern er hafa vildi. Það þyrfti kannske eldri mann en mig til Þórhallur Bjarnarson. að Segja það, að nauðsynlegri þrjú viðfangsefni gat félagið naumast valið sér, því að svö marg- ir eru þeir, sem Játa sér fátt um finnast þetta alt saman. En hver hugsar svo vel, að hann vilji ekki geta gert það betur? Hver orðar hugsanir sínar þannig, hvort heldur er í ræðu eða riti, að hann ekki vilji geta gert það betur? Hver er svo hraustur að hann vildi ekki vera hraustari? Eða hver er svo fróður, að hann vildi ekki fræðast meira ? Eg held jafnvel ekki þeir, sem jafnan lá þeim mönnum, sem bindast félagskap til þess, að komast sem lengst i þessu, hverju um sig. Og ein spurning enn: Er þetta þrent ekki uppistaðan í þessum vef, sem kallað- ur er líf? Báðir höfðu þeir Jóhannes og Þórhallur verið áhugasamir Góðtemplarar, og eflaust á bindindis-skuldbinding Ungmennafélaga rót sína til þess að rekja. Þegar i marsmánuði var farið að vinna

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.