Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1914, Síða 2

Skinfaxi - 01.02.1914, Síða 2
16 SKINFAXI aílsins til að draga vagn menningarinnar. Maðurinn var aðeins andinn sem stýrði. Afleið- Var nú runnin upp ný gullöld Ing-ar. fyrir mannkynið, méð tóm og nœði til að hugsa, mannast og njóta yndisleika lífsins? Sumir héldu það, en draumar þeirra hafa ekki rætst enn. Nýi tíminn kom með bylting og baráttu. Hann sett- ist að, þar sem aflið bjó, kolin eða járnið. Þar risu upp verksmiðjur gufuknúðar, sem unnu nauðsynjagripi ódýrar og fljótar en nokkur annar. Dreifðu handiðnamennirnir, sem að að öðrum þræði voru hálfgerðir bændur, gátu ekki kept við vélaframleiðsl- una. Varningur þeirra varð of dýr; enginn vildi kaupa hann. Þeir urðu að gefast upp, liætta að vera sjálfstæðir atvinnurek- endur og krjúpa að fótum vélaeigandanna, og biðja þá um vinnu og brauð. Vinnu gátu þeir fengið og suitarbrauð. Vélaeig- endur böfðu þörf fyrir nýja menn og vél- ar; því meiri framleiðsla, því meiri gróði. — Þannig rísa upp stórborgir nútímans; gufumagnið hefir seitt þangað margt fólk úr landsbygðinni, boðið þvi tvo kosti: að koma eða deyja. I borgunum óx verkskift- ingin. Einn hjó kol alla æfi, annar bræddi málm, þriðji smiðaði úr stáli, fjórði spann, fimti óf. Allir unnu þessir menn, en eng- in gat lifað á því sem hann framleiddi, heimili þeirra voru ekki sjálfstæð eins og gömlu sveitaheimilin. Þau þurftu að selja alt sem þau framleiddu en kaupa í stað- inn all sem nota þurfti; það var dregið saman utan úr víðri veröld. Afurðir allra jarðbelta blandast nú saman á borði hins snauðasta manns. Þá hleypti nýi tíminn fjöri og afli í gamla stétt, kaupmanna- stéttina. Hún varð nú margfalt voldugri en fyr. Hún varð að lifsnauðsyn, að band- lið milli þeirra, sem vildu selja alt, er þeir framleiddu og kaupa alt sem þeir eyddu. Tveir Verksmiðjueigandinn og nútíma- drottnar. kaupmaðurinn eru drottnar og eftirlætisbörn nýja tímans. Arfur þeirra, og hann er mest auðæfi heimsins, er kaup verkvélanna, það sem átt hefði að gjalda þeim, ef þær hefðu krafist kaups, og dá- Iítið, lakar fengið, í viðbót. En með hverri minútu sem líður streymir meira í erfða- hirslu tvíburanna. Nýlega er dáinn einn peningakaupmaður i Ameriku, sem átti eins mikið fé og allir Norðmenn og Danir til sam- ans, að löndunum meðtöldum og öllu því sem þessar þjóðir hafa dregið saman frá upphafi vega. En þetta mikla fjársafn höfðu tveir ættliðir, faðir og sonur, dregið saman undir vængjum nýja tímans. Nýi tíminu Anderson hefir komið hingað á íslandi. j raun og veru. Hann kom þegar þilskipin og togararnir voru keypt, og gömlu, dreifðu eigendur smábátanna lögðu niður atvinnustjórn og gerðust þjón- ar þeirra, sem eignast gátu dýru skipin. Þá myndaðist Reykjavík, og allir smákaup- staðirnir við ströndina. Nýi tíminn held- ur fast að þjónum sínum, í þéttum bygð- um, utan um aílgjafana: eigendur stórfram- Ieiðslutækja og kaupmennina. Að sama skapi þynnist í sveitunum og þær verða máttarminni í þjóðfélaginu. Þétlbýlið, með samandregið fjármagn, atvinnurekstur, með margbreyttar skemtanir og hverskonargleði- vonir fær algerða yfirhönd. En innan bæj- anna klofnar mannfélagið meir og meir í tvær stéttir efnamenn og öreiga; stórvinnu- veitendur og kaupmenn, en hinsvegar verka- menn. Annar flokkurinn, sá sem situr sólarmegin, fær eftir því sem tímar líða of mikið af gæðum lífsins, of mikið fé, völd, hvíld, næði og nautnir. Hinn, sem í skugganum er, vantar fé til að geta lifað heilbrigðu lífi, völd til að geta borið hönd fyrir höfuð sér, tóm til að geta fræðst og auðgast andlega, hvíld til að renna aug- unum að þeim auði lista og snildar, sem æ verður meira um í heiminum. Jafn- vægið vantar. Blessun hugvitsins hefir orðið að tvíeggjuðu sverði, af því mann- kynið kann miklu ver að gæta fjár en að afla þess. Það lætur enn öfl, jafn blind og dauð eins og þau sem knýja verkvélar

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.