Skinfaxi - 01.02.1914, Side 14
28
SKINFAXI.
Fjóröungsþlng'ið,
verður ekki í þetta sinn haldið í Borg-
arfirði eins og ráðgert var. Ber það til,
að þangað mundu fáir fulltrúar hafa sótt
úr austursveitum og jafnvel úr Rvík. En
þetta þing þarf að vera fjölment. Það
tekur til meðferðar mörg mikilsverð mál,
sem öllum félögum koma við, ekki síst
fjórðungaskifting og fulltrúakosning til
sambandsþings. Skiftingamálið þarf að
ræða vandlega frá báðum hliðum, og verða
i næstu blöðuin Skinfaxa rækilegar grein-
ar um það efni eftir Jón í Deildartungu,
Bjarna Asgeirsson o. fl. Fjórðungsþingið
verður því í Rvík um miðjan maí (lokin).
Þá koma fjölda margir Ungm.fél. hingað
af fiskiskipum eða úr verinu, og aðrir til
að sækja þá. Er því aldrei Iéttara eða
kostnaðarminna fyrir fjarlæg félög að hafa
heimansenda fulltrúa, en einmitt þá, en
að þvi er stefnt hér. Því miður er ekki
hægt að ákveða nákvæmlega þingdagana
iyr en gerð er áætlun fyrir Flóabátinn Ing-
ólf. En hún er ógerð enn.
Enn um fjórðung'sskii'tin.
Sr. Tryggvi og Sigurður Vigfússon hafa
fært fram ýmsar ástæður með því að láta
alt sitja í sama horfi. Gegn því vil eg
gera þessar athugasemdir:
1. Fjórðungurinn er svo stór að félags-
menn ná til engra funda saman, ekki
einu sinni með fulltrúakosningu. Sann-
ar það reynsla undanfar. ára.
2. Nú verður Rvík að vera þingstaður,
en þar drukna þingin í bænum, verða
dauf og í molum.
3. Að neyðast til að hafa þingin til skift-
is í Borgarfirði og að Þjórsártúni
með tæpan helming fulltrúa mættan
sýnir að fj. er nú of stór.
4. Að þingið við Þjórsárbrú var ánægju-
Iegt, bendir á að þeir fundir fyrir
hæfilegt svæði séu betur komnir í sveit
en í bæjum.
5. Kynningin og áhrifin innbyrðis sára-
lítil eins og nú er, og ekki Iikleg til
að fara vaxandi.
6. Allar fjórf ungsstjórnir hafaþótt dauf-
ar og framkvæmdarlitlar, og þó verið
margskift um menn. Það bendir á
að annaðhvort sé lítið mannval í U.
M. F. í Rvík, eða að starfið sé for-
sending.
7. Nær ómögulegt er að fá menn til að
vera í fjórðungsstjórn, sem sýnir að
þeim, sem í verki kynnast fjórðungs-
skipuninni, þykir hún óviðunandi.
8. Fráleitt að menn i Rvík eigi að stjórna
smámunum í U. M. F. á svo víð-
lendu svæði eins og fjórð. er, þar sem
þeir þekkja aðeins iel. og félagana
á pappírnum.
9. Alls ómögulegt að hafa styrkjandi eftir-
lit með félögum í fjarlægum sveitum
fyrir sískiftandi fjórðungsstjórnir, þar
sem báðir málspartar eru ókunnugir,
10. Ráðið út úr vandræðunum er að hata
samböndin minni, héraðasambönd,
sem annist heimamdl héraðanna.
En auka hinsvegar vald sambands-
stjórnarinnar, að hún marki aðál-
drcettina í verkaskrá félaganna, en
að hinsvegar sé héraðastjórnum falin
umsjón með þeim málum, sem inn-
anhéraðsmenn einir geta borið skyn
á og leyst af hendi.
Jónas Jónsson.
Mál á fjórðuug-sþiugí
verða, auk venjulegra nauðsynjamála:
Fjórðungaskiftin. Fulltrúakosning til sam-
bandsþings. Skógræktardagurinn. Þjóð-
garður á Þingvöllum. Iþróttakenslan. Fyr-
irlestrafyrirkomulagið. Bókasöfn í Ungm.-
fél. Héraðamót. Eitthvað mun bætast
við enn. Þeir þrir menn sem þetta ár
hafa átt sæti i fjórðungsstjórn þverneita
enduikosningu. Verður því enn að leita
nýrra manna í það starf.
Fyrirlestrar.
Stjórn Sunnlendingafj. hefir lagt drögur
fyrir fyrirlestra við þessa menn: Bjarna
Asgeirsson í Knararnesi, sr. Tryggva á
Hesti, Pál Jónsson og Pál Zophoníasson
á Hvanneyri og sr. Jakob í Holti. Nokk-
ur von er um að samningar takist við
fyrirlestrarmann samvinnufél., Sigurð Jóns-
son í Ystafelli um fyrirl. í Rangárv. og
Árnessýslu.