Skinfaxi - 01.03.1914, Page 3
SKINFAXI
31
aðurinn og stríðin séu í þeirra þágu. Má
þar til nefna Krupp, fallbyssusmiðinn !
mikla. Um hann hefur sannast að hann
heldur blöð bæði í Frakklandi og Þýska-
landi til að ala á hatri milli þeina þjóða
og hvetja báðar til vígbúnaðar. Vopna-
og hergagnasmiðir blása eldi að ófriðar-
kolunum hvar sem er, því að vatn er á
þeirra myllu, þegar barist er. Um Búa-
stríðiö er heimskunnugt, að Englar húðu
það (sér til skaða og skanmiar) til að greiða
götu enskra miljónera í Suður-Afríku.
Rússa skortir bómull handa verksmiðjum
sínum, og hafa þeir komið á mikilli yrkju
við Kaspihafið. En það nægir ekki. Þess
vegna úgirnast þeir, og eru að taka Persa-
land, því að það er vel fallið til bómull-
arræktar. Ut af Marokko hefir hvað eft-
ir annað legið við Erópustríði vegna kepni
Frakka og Þjóðverja um landið. En auð-
menn beggja þjóða sækjast þar eftir mark-
aði og námum. Til brúðabyrgðar hafa
þó auðkýfingar, þýskir og franskir samið
frið og skift með sér herfanginu, en alt
af logar undir í glóðunum. Kína er eft-
irsóknarvert bæði sem námu og markaðs-
land. Þess vegna lögðu Rússar Síberíu-
járnbraulina miklu, til að ná þar yfirtök-
um. En féð urðu þeir að fá að láni hjá
Frökkum og gjalda fyrir samband móti
Þjóðverjum. En Þjóðverjum þótti öllu
gott, að Rússar stefndu i austur og væru
þá síður keppinautar í löndum Tyrkja,
en þar eru Þjóðverjar nú alvaldir, og
leggja stund á að halda því sæti. Hafa
þeir beitt sér fyrir að leggja Bagdaðbraut-
ina, úr Litlu-Asíu og austur að Persaflóa,
um Mesapótamíu. Þegar hún er komin
á, mun dalurinn kringum Babýlon rísa
upp í fornum blóma, og er talið, að þar
geti lifað 40—50 miljónir manna. Þar
er gott bómullarland og vænlegt um mark-
að. Stjórnir landanna eru alstaðar hlynt-
ir þeim, sem féð hafa, og má því segja,
að utanríkismálin snúist eingöngu um
gróðakepni. Og fjandskapurinn milli stór-
veldanna er ekki milli þjóðanna sjálfra,
heldur einstakra manna, sem halda við
æsingablöðum og ala á og margfalda hvert
deilumál — til að vinna ný lönd og opna
markaði.
Auðvaldið Varla verður sagt að þetta
stðrliœttulegt yfirlit styrki þá kenningu, að
þjóöunum. auðvald sé nauðsynlegt til
þjóðþrifa, því að bæði í sögu okkar, og
viðskiftum þjóða ná á dögum, er það or-
sök mestu rangiudanna og ósiðlætisins:
herbúnaðar, styrjalda og ágangs á veikar
þjóðir. Stórauður er þvert á móti hættu-
legur, eða gerir mennina hættulega. Hann
veitir óheyrilega mikið, nær ábyrgðarlaust
vald. Hann venur menn ú að fórna öllu
á altari Mammons. Vegna spiltra auð-
manna mistu íslendiugar, Búar o. fl. þjóð-
ir sjálfstæðið. Vegna þeirra stynur heim-
urinn undir oki hins vopnaða friðar, og
vegna þeirra má á hverri stundu búast
við að morðvélarnar leggi hálfan heiminn
í eyði.
Um skifting Sunn-
lendingaf jórðungs.
Nú á síðustu tímum hefir verið vakin
allmikil alda, hér í Borðarfirði, í þá átt
að skifta Sunnlendingafjórðung.
Saga þessa máls er i sluttu máli þessi:
Fyrri hluta vetrarins 1911 —12, varfar-
ið að leggja drög til þess, að stofna sam-
band eða bandalag milli ungmennafélag-
anna i Borgarfirði, með þeim einum til-
gangi, að koma á íþróttamóti að sumrinu
fyrir félögin, og halda umræðufundi að
vetrinum, i þeim tilgangi að glæða áhuga
félaganna og auka samúð þeirra innbyrðis.
— Það varð að ráði, að samband þetta
var stofnað, en þegar á stofnfundi komu
fram raddir, frá framsóknargjörnum ung-
mennafélögum, hvort ekki rnætti ná undir
þetta samband einhverju af því valdi og