Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.1914, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.03.1914, Blaðsíða 4
SKINFAXI. fé, sem nú lægi undir fjórðungsstjórn og fjþingi. Þeim virtist sem sé, ekki vera nægjan- legt verksvið fyrir sig, að efla með sam- úð og samvinnu ungmennafélagsskapinn, á frjálsum grundvelli, heldur þyrftu þeir að nema fé og vald frá yfirstjórn ung- mennafélaganna. — Frá þessum tíma Iiafa forgöngumenn þessarav stefnu, ekkert tæki- færi látið ónotað, til þess að vinna máli sinu gagn, bæði með því að halda á lofti öllu því sem þeir geta, oggertgetur menn óánægða með það fyrirkomulag, sem nú er; svo sem með því að sýna fram á van- rækslu fjórðungsstjórnar, aðgerðaleysi fjórð ungsþings og ósamræmi í sambandslögun- um. En aftur á móti gylla fyrir mönn- um það ástand, sem verða myndi, ef fjórð- ungnum yrði tvístrað, og hefir einkum á því sviði kent mestra iifganna, þegar þeir lýsa ágæti þeirrar afstöðu, sem ungmenna- félögin myndu fá, ef þessi óákveðnu sam- bönd komast á, sem haklið er fram og eg mun skýra frá síðar í grein þessari, hvern- ig er í aðaldráttum. Þetta mál kom fram á fjórðungsþingi 1913, aðallega til umtals, en ekki til á- Iyktana. Var nefnd kosin í niálið, er starfa skyldi milli þinga, og auk þess skorað á fjórðungsstjórn, að reyna að fá næsta fjórð- ungsþing haldið að Hvanneyri. Og var þetta hvortveggja gert, til að draga úr þeim tvístrunaranda, sem virðist ráða þessu máli, með trausti til þess, að forgöngumenn þessarar byltingar, myndu fáfet með Jiessu til að líta á málið frá sjónarmiði heildar- innar, og hætta að halda uppi öfgafullu sjálfstæðishjali, fyrir einstaka hluta fjórð- ungsins. Hafði þingið svo góða trú á, að í Borgarfirðinum væru svo góðir ungmenna- félagar, að þeir myndu ekki vilja halda fram, þegar þeir sæu að málið félli í þeirra gerð, öðrum en því, sem gæti í allastaði verið heildinni fyrir bestu, án allrar hlutdrægni. — Þessi bjartsýni fjórðungþings, studdist að nokkru leyti við það, að svijiað hafði átt sér stað, austanfjalls árið 1911. Þessar aðgerðir fjórðungsþings virðast ekki ætla að koma að tilætluðum notum. Forgöngumenn breyt- inganna hafa notað stöðu sína í milliþinga- nefndinni, til að skrifa hréf í félögin, þar sem þau áttu að velja, eða segja álit sitt, um hvert þessara svokiilluðu frjálsu sam- banda þau vildu fella sig við, en auk þess haldið kappsamlega að mönnum, að hin lauslegustu og smæstu myndu reynast best og ávaxtaríkust fyrir ungm.félögin. — Aðal- kerfi þessara frelsispredikana er hirti í Skinfaxa 6. og 8. hl. f. á. Hefir því ver- ið svarað með rökum í sama blaði 1. bl. þ. á. Á aðalfundi U. M. S. B. 31. jan. og 1. febr. þ. á , var samþykt tillaga, sem fer í ])á átt, að fella niður fjórðungssambandið, en í stað Jiess komi, eða geti komið sam- bönd viðsvegar i fjórðungunum, eftir því sem félögunum kann að koma til hugar í þann svipinn. Þetta er samkvæml því, sem lengst hefir verið gengið og er nú svo komið, að sum- um, sem fylgt hafa breytingu á sambands- lögunum, þykir nú ollangt gengið, svo það gæti ef til vill orðið tilefni nýrrar tvístr- unar í þessu máli. — Þetla er í sem fæst- um ovðum saga málsins. Eg ætla ekki að lýsa hér stjórnarfyrir- komulagi þvi sem nú er í samb. ungmenna- félaganna; það ætti að vera öllum ung- mennafélögum sæmilega ljóst, en vil at- huga, hvernig yfirstjórn ungmennafélaganna yrði háttað, ef þessar breytingar næðu fram að ganga og er sumt af því þegar viðurkent af byltingamönnum sjálfum. Þar sem hugmyndin um samhönd und- ir U. M. S. I. yrði svo óákveðin og á reiki um stærð þeirra, þá liggur það í augum uppi, að nær því ekkert af þeim málum, sem nú liggja undir íjórðungsstjórn og fj.Júngi, myndi ganga til Jieirra, svo fram- arlega að sambandsþing verði skipað þeim mönnum, er láta sér ant um að stjórn sameiginlegu málanna komist í það horf

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.