Skinfaxi - 01.03.1914, Síða 10
88
SKINFAXI
jöfnu veðri ætti ab hafa tjöld, og gætu ])au
enst lengi. í þeim mætti hafa veitingar.
Aldrei ættu slíkar sanikomur að vera haldn-
ar í kaupstöðum, til að dreifa ekki fundar-
mönnum og áhugaefnum. Þessi mótættu
að vera fyrir hvert hérað, komast á sem
fyrst, og ungmennafélögin aðgangast fyrir
þeim.
Ungmennasamband Borgfirðinga
Og
fjóröungsskiftin,
Jlagana 31. janúar var aðalfundur U.
M. S. B. haldinn að Hvanneyri.
Margt gerðist á fundinum, sem er þess
vert að þess sé getið í Skinfaxa, en tíma-
leysi hamlar mér frá að gera það að þessu
sinni.
Þó vil eg geta um fjórðungsskiftamálið
strax, svo menn geti hugsað um það sem
best og aðgætt, hvort ekki megi umbæta
tillögu þá, er hér var samþykt.
Þetta mál er ekki ungt. Það er víst
fyrst til orðið austur í Arnessýslu. Aður
en sambandslögunum var breytt 1911,
vildu mörg félög þar mynda smærri sam-
bönd innan U. M. F. í., og þau félaga-
sambönd áttu svo að senda fulltrúa á
sambandsþing á Þingvöll. Með sambands-
lögunum 1911 var þessi hugmynd drepin
í bráð.
Þegar fyrst kom til umræðu að stofna
U. jM. S. B. 2. febr. 11>12, kom þessi
hugmynd aftur. Valdimar Bjarnason frá
Olvisholti, Páll Zóphoníasson og Bjarni
Ásgeirsson mæltu allir með stofnun sam-
bandsins, af því að þá mundi verða hægra
að minka fjórðunginn og fá fleiri smá-
sambönd innan U. M. F. I. Síðan hafa
á öllum fundum U. M. S. B. verið um-
ræður um málið, og það er ekkert eitt
mál, sem hefir verið rætt eins mikið og
fjórðungsskiftin, enda margbrýnt fyrir fé-
lögunum, hve áríðandi sé að mynda sér
f því sjálfstæðar skoðanir.
Eg var einn í þeirri nefnd, sem kosin
var i málið á síðasta fjórðungsþingi, og
okkur Björnstérne kom saman um það, að
best væri áður en nefndin færi að starfa,
að fá álit allra fjelaga um málið.
Til þessa reit eg öllum félögum hér
efra og bað þau að ræða niálið vel og
vandlega, og taka um það ákvarðanir, sem
við gætuni bygt á.
Við þessu urðu félögin. Flest hafa þau
sent mér tillögur sínar, og fulltrúa til að-
alfundar U. M. S. B. kusu þau einungis
með hliðsjón til þessa máls.
U. M. F. Akraness er ekki i U. M. S.
B., en það er eindregið með fjórðungs-
skiftunum.
U. M. F. Stafholtstungna er ekki heldur
i U. M. S. B. enn og engar tillögur hefir
það sent mér. Um viija þess er mér því
ókunnugt.
U. M. F. Haukur, Egill Skallagrímsson,
Björn Hitdælakappi, Borgarhrepps, Baula
og íslendingur samþyktu með samhljóða
atkvæðuin tillögur, sem fóru í þá átt, að
skifta fjórðungunum, en Dagrenning, Reyk-
dæla og Brúin samþyktu hið gagnstæða.
I Dagrenning var mjög lítill atkvæða-
munur, enda fáir á fundi; sennilega líka
meiri hluti allra félaga þar hlyntur
fjórðungaskiftingunni, því á aðalfund U.
M. S. B. kusu þeir 2 fulltrúa, eftir að
þeir höfðu lýst sig skiftingunni fylgjandi
á allfjölmennum fundi innan félags.
I Reykdæla eru lika skiftar skoðanir og
á aðalfund U. M. S. B. sendu þeir einn
fulltrúa af þremur, er var með skifting-
unni.
I Brúnni eru flestir á móti skiftingunni,
en þó eru þar líka nokkrir með henni..
Á fundinum hóf Andrés Eyjólfsson um-
ræður, og lagðist hann eindregið á móti
skiftingu fjórðunganna.
I sama strenginn tóku þeir Jón Hannes-
son og Tryggvi Þórhallsson. Aðallega