Skinfaxi - 01.01.1922, Síða 13
SKINFAXI
13
sonar sundkennara var sigurvegarinn; hann
er nú 17 ára og var jafnfljótur og Erling-
ur bróðir hans var á sama aldri. Þetta er
3ji bikarinn sem kept er um, hefir Erling-
ur Pálssonar sundkennara unnið 2 þá fyrstu
og voru þeir gefnir af Guðjóni Sigurðssyni
úrsmið en Sigurjón Pétursson gaf þennan
bikar. Keppendur voru allir á aldrinum
frá 17—20 ára, 3 syntu Skriðsund, 2
yfirhandarsund, 2 hliðarsund og 3 bringu-
sund. Erlingur Pálsson hefir sett met á
þessari vegalengd sem er 334/5 sek. Sund-
ið fórst fyrir í fyrra Sökum ónógrar þátt-
töku. Bendir þetta til þess að ábuginn sé
að vaxa fyrir sundinu og er sennilegt,
enda óskandi, að sumarsundin farist nú
ekki fyrir úr þessu; verður ekki á móti
því mælt áð mikið vanti í leikmótin ef
ekki er kept í sundi.
M. S.
Félagsmál o. íl.
Bréf. Með þessum pósti sem fer frá
Rvík. 31. jan. er öllum félögum sem eru
í sambandi U. M. F. I. sent bréf frá sam-
bandsstjórn. Af því að ég hef orðið þess
var að ekki hafa öll félögin fengið Sam-
bandslögin sem send voru með Desember-
pósti síðast, þá vil ég biðja þau félög sem
ekki fá bréfið að gera sambandsstjórn
aðvart, og sömuleiðis þau félög sem ekki
hafa fengið sambandslöginn ennþá, að
skrifa um það. Einnig er óskað eftir svari
frá félögunum við þessu bréfi, það fyrsta.
íþróttakennari. Nokkur félög hafa beðið
Sambandsstj. um íþróttakennara næsta sum-
ar. Ef fleiri félög hefðu hug á því, þá ættu
þau að gefa sig fram sem fyrst. Bezt væri
ef fleiri félög á sama svæði gætu samlagað
sig, eða minsta kosti, komið sér saman
um að fá kennara þannig að hvert taki
við af öðru.
Guðmundur frá Mosdal dvelur á ísafirði
í vetur. Starfar hann þar að kenslu á
Heimilisiðnaði sem áður. Hélt námsskeið
þar fyrir jólin, við mikla aðsókn. Bráðlega
fer liann norður til Akureyrar í sömu er-
indum. Komið hefir til mála að hann héldi
námsskeið víðar, ef veturinn endist til þeSs.
Skinfaxi vonar að geta skýrt nánar frá
starfi Guðmundar í næstu blöðum.
Notið póstinn! Það ber æði oft við að
bréf týnast fyrir það, að þau eru send með
ferðamönnum. Ungmannafélagar ættu að
setja sér þá föstu reglu, að senda öll bréf
með póstum og peninga í póstávísunum.
Kostnaður við það, er hlutfallslega miklu
minni, en sú trygging er það veitir fyrir
góðunr skilum.
Olympíunefnd í. S. í. íþrótta samband
Islands skipaði í haust 12 manna nefnd
til þess að undirbúa íþróttamenn undir
næstu olympíuleiki sem fram eiga að fara
í París 1924. Þessir menn voru skipaðir í
nefndina: Benedikt G. Waage, Guðm. Kr.
Guðmundsson, Sigurjón Pétursson, Magnús
Kjaran, Magnús Stefánsson, Olafur Sveins-
son, Andr. Bertelsen, Pétur Sigurðsson,
Iíelgi Jónasson, Björn Olafsson, Steindór
Björnsson og Ágúst Jóhannesson. Aðal
starf nefndarinnar á að vera það, að safna
fé til fararinnar og undirbúa íþróttamenn
svo sem hægt er, með því að leiðbeina og
stuðla tií þess að efnilegir íþróttamenn og
íþróttamannaefni, æfi vel og rétt, og fái
tækifæri til þess. Vonandi vilja allir styðja
nefndina í starfi hennar.
Frá Akranesi. íþróttafélagið Hörður á
Akranesi hélt hina árlegu kappglímu sína,
í Báruhúsinu þar 27 þ. m. Keppendur
voru 11 og hlutskarpastur varð Eyjólfur
Jónsson (form. félagsins) 2. Sigurður Sig-
urðsson og 3. Jón Eggertsson. Glímumót
þetta fór vel fram og þótti eitt hið bezta,
sem þar hefir verið háð lengi.
I. S. I. hefir leyft félaginu að halda annð
glímumót fyrir drengi á aldrinum frá 10—
16 ára og á það mót að fara fram í þess-