Skinfaxi - 01.12.1925, Side 2
114
SKINFAXI
hafar og fjárráðamenn þjóðarínnar teldu sér skilt að
hlúa að nýgræðingnum.
pað var óhugsandi að vormenn Islands yrðu bornir
út á klakann og látnir svelta til heljar. — Nú er rétt að
alþjóð íslands sjái, hvernig sólardraumur Guðmundar
skálds og annara ágætismanna, sá er þá dreymdi um
ungmennafélögin, hefir ræst. Kemur þá einkum þrent
til greina: í fyrsta lagi, hvernig ungmennafélögin hafa
gert skyldu sína, í öðru lagi hvernig samúð og skiln-
ingur eldri nágranna hefir stutt þau, og hvernig þeim
hefir verið tekið, er þau hafa leitað trausts þeirra, sem
með völdin fara.
Fyrsta ungmennafélagið var stofnað á Akureyri 1906.
Hvatamaður þess mun hafa verið Jóhannes Jósefsson
hinn alkunni íþrótta- og æfintýramaður. Hann var þá
nýkominn heim úr ferð um Norðurlönd, hefir hann
eflaust kynst ungmennafclögunum norsku, sem höfðu
starfað þá um 20 ár og látið allmikið til sin taka.
Akureyrarfélagið var fáment í fyrstu, en eflaust hef-
ir þar hvert rúm verið vel sldpað, því þeim félögum
tókst að leggja svo góðan grundvöll að félagsstarfsemi
sinni í heimahögum, að Akureyrarfélagið hefir jafn-
an verið talið fyrirmynd allra ungmennafélaga hér á
landi, og frá því félagi mun runnin reglugerð sú er
siðan hefir gilt að mestu óbreytt fyrir öll félög innan
U. M. F. í.; sést það af henni, að þar hafa víðsýnir menn
að unnið, sem ekki var litið í Iiug um umbæturnar.
Ungmennafélagshreyfingin barst óðfluga yfir land-
ið, og festi rætur í flestum sveitum og mörgum kaup-
stöðum á ótrúlega skömmum tíma, einkum um Suð-
ur, Vestur og Norðurland. Um allmörg ár mynduðu
félögin fjórðungasambönd, en síðar var því breytt, og
samböndin miðuð við sýslutakmörk. En héraðssamb.
eru í landssambandi, sem nefnist Ungmennafélag fs-
lands.
Af þessu sést, að félögin eru allvíðtæk og svo fjöl-