Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1925, Side 10

Skinfaxi - 01.12.1925, Side 10
122 SKINFAXI nóg að gera. Heldur ekki að svo torvelt yrði að afla reksturfjárins af almannafé, og með gjöfum frá íþróttavinum. Langerfiðast verður að koma upp nauð- synlegum byggingum í fyrstu. Til þess þarf samskot, gjafir og áheit. Og' þess vegna þurfa ungmennaf jelög- in að auka sjóðinn. Halda smáskemtun á hverju vori til ágóða fyrir iþróttaskólann. Hver lilil gjöf gerii’ kleift að auka nokkru við af áhöldum, eða stein í vegg skól- ans. Ef unt yrði að hyrja á íþróttaskólanum að ein- hverju leyti á vegum annars eldri skóla, mætti hugsa sér að nemendur gæfu eitthvað af vinnu við að steypa steina, t. d. í leikfimishús, eða sundhöll. par sem hvera- liiti er nægilegur mætti reisa hráðabirgðaskúr til að steypa i steina að vetrinum til, og leiða þangað hita. Nemendur myndu fúslega gefa ofurlitla stund á hverj- um degi til að steypa steinana og væri þá jafnframt veitt tilsögn við þessi vinnuhrögð. Væri þá tvent gert í einu. Að þoka áfram byggingu íþróttaskólans og kenna ung- um mönnum hinar bestu aðferðir til að byggja sjálf- um sér ný heimili. Á Fjóni i Danmörku er nafntogaður íþróttaskóli, Ollerup, skamt frá Svendborg. Stýrir honum Niels Buch, hinn nafntogaði endurhótamaður danskra íþrótta. Nú í sumar reisti hann sundhöll mikla, þannig, að námssveinamir unnu að múrverkinu fyrír lilla borg- un, stund úr degi. En á sunnudögum fór Bueh með allan íþróttamannahópinn til einhverrar horgar í Dan- mörku og sýndi kunnáttu þeirra fyrir fé. pvi fé sem inn kom á hverjum sunnudegi var varið til að kaupa steinlim og sand og möl til vikunnar. Áhugi danskra íþróttavina reisir sundhöllina i Olle- rup. Áhugi íslenskra ungmennafélaga á að reisa íþrólta- skólann islenska. J. J.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.