Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1925, Side 28

Skinfaxi - 01.12.1925, Side 28
140 SKINFAXI Mun Búnaðarfélagið hafa kvalt þá á námskeið þetta til þess að þeir fengju sem best yfirlit og upplýs- ingar um hin mörgu og mikilsverðu vandamál, sem bíða þeirra um land alt. Fyrir því voru fluttir fyrirlestr- ar á námskeiðinu af sérfróðum mönnum um ýms bún- aðarmál. Málfundir voru haldnir daglega. par voru rædd vandamál, sem bændur þurfa að leysa úr á næstu árum. Meðal annars var rætt um samvinnu Búnaðar- félags íslands og ungmennafélaga íslands. Allir voru sammála um að verkleg störf gætu þar orðið sameigin- leg meira en verið befir, þar eð landbúnaðinum væri það lifsnauðsyn að æskulýður landsins fengi brennandi ábuga fyrir jarðrækt og hverskonar búnaðarframför- um. Hr. Metúsalem Stefánsson ráðanautur flutti merki- legt erindi um störf ungmennafélaga í Bandaríkjunum. Lýsti hann því ítarlega hvernig unglingar vestur þar leggja rækt við ýmsar greinar landbúnaðarins. peir fá bletti til fullra umráða, sem þeir birða og rækta að öllu leyti sjáll'ir og njóta uppskeruunar af þeim. Öðr- um eru gefin húsdýr. þeir afla fóðurs handa þeim, bii*ða þau sjálfir að öllu leyti og njóta afurðanna af þeim. Ungar stúlkur hafa bliðstæð verk með höndum utan liúss og innan. Öll miðar starfsemi þessi að þvi að auka framleiðslu heimilanna, fegurð þeirra og yndi. Unglingarnir bera sjálfir fulla ábyrgð á verkum sín- um og njóta afurðanna. Vinnuflokkarnir njóta tilsagnar og leiðbeininga fag- lærðra manna við störf sín. Trúnaðarmenn búnaðar- félaga kenna vinnuflokkunum. Sýningar eru haldnar, og verðlaun veitt þeim, sem best liafa gert og lengst hafa komist i sinni grein. peir sem fram úr skara og verðlaun liljóta verða að gefa skýrslur um vinnuaf- urðir sínar, og oft verða þeir að greina frá þeim munn- lega í heyranda hljóði. Alkunnugt er, að ekkert getur þroskað betur mann-

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.