Skinfaxi - 01.12.1925, Qupperneq 30
142
SKINFAXI
Vonandi gerir Búnað'arfélag íslands alt, sem hægt verð-
ur að gera til þess að hér verði hafist handa. Hér er
verkefni fyrir félagið mikið, holt og hciltavænlegt. Hér
er sannarlega nm ræktun lands og lýðs að ræða. Ef
íslendingar gera sér von um að verða sjálfstæð menn-
ingarþjóð á komandi öldum, þá verða þeir að rækta
tand sitt, græða alt, sem græðandi er. — pað c r
s t æ r s t a verkefni þ j ó ð a r i n n a r, og þar
hlýtur Búnaðarfélag íslands að ganga lram fyrir
skjöldu. Ungmennafélögin verða að fylkja sér um þetta
mát, þau eiga að vera einhuga um að berjast fyrir þvi.
pað er óþarfi fyrir þau að tala um að ekkert sameig-
inlegt markmið sé framundan. Hér hefir verið bent á
eitt af hinum stóru verkefnum íslenskrar æsku. Ætt-
jörðin hrópar lil hennar, nær því ónumin og flakandi
i sárum. Hún hrópar um ræktarleysi, rótleysi og öfug-
streymi, og þó eru ólánssporin ekki æskunni að kenna
heldur fóstru hennar, eldri kynslóðinni. Ungmenna-
félögin — æska landsins verður að krefjast fjár og
fræðstu til þess að geta byrjað á nýrri og betri öld.
Eldri bróðurinn á að rétta þeim hendina. Búnaðar-
féla.g íslands og U. M. F. í. verða að vinna saman. Bún-
aðarfétagið á að sjá um að ungmennafélög um land alt
njóti sameiginlegrar og skiputagsbundinnar fræðslu.
pað á að skýra ítarlega fyrir þeim hvernig þau geta
sýnt áhuga sinn fj'rir landbúnaði í verkinu. „Trúnað-
a.rmenn“ ættu að gela unnið þessi störf, liver i sinni
sveit og sýslu. Verðlaun þarf að veita unglingum inn-
an tvítugsaldurs fyrir velunnin störf við garðrækt, hús-
dýrarækt o. fl. sem landbúnað snertir. Ekkert má láta
ógert, sem gelur vakið ást æskunnar til sveitanna, og
velunnina verka.
Skinfaxi mun fylgjast með í því sem gert verður i
þessu merkilega máli.
G. B.