Skinfaxi - 01.09.1928, Síða 1
p
Sept. 1928. 5. hefti.
Ný tilliögiin.
Þeirrar ráðstöfunar ber að geta, sem gerð hefir verið
um útgáfu Skinfaxa, og ýmsum rnun koma að óvörum.
Skiftir bæði um útkomustað og ritstjórn, svo ogfjaf-
greiðslu. Er svo til ætlast, að blaðið verði gefið út á
ísafirði í vetur. Ritstjóri verður Björn Guðmundsson
kennari að Núpi við Dýrafjörð, en afgreiðslu og önnur
störf við blaóið annast Guðmundur frá Mosdal.
Breytingu þessari er þannig háttað, að starfsmaður
sambandsins, Gunnlaugur Björnsson, ritstjóri Skinfaxa
og afgreiðslumaður, átti kost á kennarastöðu við skól-
ann á Hólum, og þótti eigi vert að hann hafnaði stöð-
unni. Ræður sambandsstjórn engan fastan starfsmann í
hans stað til næsta sambandsþings.
Af ýmsum leiðum, er sambandsstjórn átti um að
velja með blaðið, sýndist þessi líklegust. — Meðfram
vegna þess, er fjárhaginn varðar. — Björn á Núpi er
einn með allra þektustu ungmennafélögum á landi hér,
og hvarvetna að góðu kunnur. Væntir sambandsstjórn,
áð mörgum ungmennafélögum þyki fengur að fá hann