Skinfaxi - 01.01.1929, Side 9
SKINFÁXl
9
Landssýningin í Björgvin.
Frh.
Næst er heimaiðjuna að nefna. Heimilis-
iðnardeildin var í annari sjerstakri bygg-
ingu. Var sú enn stærri en hin, se;m áð-
. ur er getið. Húsrúmi öllu var skipt þar
niður í aðskilin rúm, opin að franlan. Voru i hverju
þeirra deiidir frá sjerstöku bygðarlagi, bæ eða lijeraði.
Einnig frá ýmsum heimiiisiðnaðarfjelögum viðsvegar á
landinu. Og ennfremur frá nokkrum heistu skðlum,
sem verklegt nám veita. Bygðarlög þau, er sjerdeildir
höfðu, voru: Sogn, Voss, Hardanger, Sunnfjörður, Norð-
fjörðui, Suður-Hörðaland, Mið-Hörðaiand, Norður-Hörða-
land og svo sjálfur sýningarbærinn, Björgvin. — Fje-
lögin voru: Björgvinjar heimilisiðnaðarfjelag, Hið norska
heim.ilisiðnaðarfjelag (eða samband, útsalan) í Oslo,
Stavangers- Levangers- Upplands- og Drammens- Norð-
lands- Heiðamerkurfylkis- og Sunnmæris- heimilisiðnað-
arfjelög. Ennfremur Vestanlands blindrafjelag, og Vest-
anlands fatlaðrafjelag. — Skólarnir, og þessk. sfofnanir
voru: Norski listiðnaðarskólinn á Voss, Kvenn-Iistiðnaðar-
skólinn í Oslo, Ríkis-heimaiðnaðarskólinn í Hás (Haus),
Sjálfhjálparsalan í Hás, Sæbö trjesmíðaskóli, Myking
trjesmíðaskóli, Frekhaug unglingaskóli og Frekhaug
búnaðarskóli.
Skólarnir og fjelögin sýndu í safnsýningum, en
bygðarlagadeildirnar skiptust í flokka, aðallega tvo, og
svo hver þeirra í fleiri hópa. Til fróðleiks þeim, sem
kynnu að hafa hug á að efna til sýninga hjer, (þó smá-
ar væru) er vert að geta, hvernig flokkað var niður:
í fyrsta flokki var spuni, vefnaður og saumur: 1. heima-
spunnið og jurtalitað band og garn, 2. spunnir, prjón-
aðir og heklaðir munir, 3. nytjavefnaður allskonar, 4.
listvefnaður pg 5. tilheyrandi teikningar og uppdrættir.
í öðrum flokki voru: Vinna úr trje, málnii, o. m. fl.:
Heimiiisiðn-
aðardeildin.