Skinfaxi - 01.01.1929, Blaðsíða 8
8
SKINFAXI
skemtilegur, og kunni margt að segja frá ferðum sínum
eins og allir umferðasalar.
Þó að ferðalag þetta væri erfitt með köflum, marg-
borgaði það sig. Það getur enginn gert sér í hugarlund,
nema sá, sem hefir reynt það, hve einkennilega góð og
skemtiieg áhrif það hefir á mann, að vera nokkra sól-
arhringa á ferð gegnum þessa óendanlegu skóga, fjarri
mannabygðum, einn síns liðs, eða með samhentum fé-
laga, og upp á engan kominn. Og ánægjan af þeirri
skemtun, sem mest er fyrir haft, er oftast mest, og
varir lengst.
Daginn eftir kvöddum við Dalina, sem fyllilega höfðu
fylt þær vonir, sem eg hafði gert mér um þá.
Við stigum á lestina, og þutum af stað á leið til
Stokkhólms. —
Ritað 1 Tröð i Öndverðum nóvemberinánuði 1928.
Guðlaugur Rósinkranzson.
Skinfaxi.
Skinfaxi, málgagn Ungmennafjeiaga íslands er gefinn
út á ísafirði. — Ritstjóri er Björn Guðmundsson, kenn-
ari að Núpi. Afgreiðslu og umsjá með útgáfunni
hefir Guðmundur Jónsson frá Mosdal. — Til hans má
senda allt efni í blaðið, og annað það er blaðinu við-
kemur. Bóksöluverð blaðsins — 8 hefti á ári — er
3 krónur, en til sambandsfjelaga aðeins 1 kr. 50 aurar.