Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1929, Side 10

Skinfaxi - 01.12.1929, Side 10
122 SKINFAXl lega, er það, að hún er oftlega verkfœri hjegómans. Og það er hjegómanum fengur, sein jafnan þarf að hafa nokkuð nýtt til þess að ganga í augu fólksins og eyru, — að skapa sem skemmilegasta tísku. Af þessu leiðir, að mesti urmull berst að, eða sprettur upp, sem katlast „móður" eða tíska, er fjöldinn allur af skannnsýnu fólki hleypur eftir og grípur fegins hendi! í þessum gönu- hlaupum ætla menn svo að þeir höndli dýrmæti nokkur, þar sem f raun og veru er tái eitt. Og verður þetta þá til að spilla og útrýma mörgu þjóðlegu og þjóö- holiu úr högum manna og lifnaðarháttum. Og þó sumt af sllku tagi sýnist að vísu smávægilegt — og næsta meinlftið í sjálfu sjer, þá iniðar það allt að sama skemd- armarkinu. Og allir þesskonar smáfjandar i hersveitum hjegómans fá ótrúlega miklu vondu ti! vegar kotnið. Öll slik tildur-tíska, er hjegóminn stjórnar, gerir þannig óaflátanlegar árásir á alla þjóðsiðu og þjóð- rækna háttu: á allt það setn þjóðlegt er, — og verður þjóðmenningunni oftlega átumein. Þessi ófögnuður fær og nokkurn kraft við þá kenn- ingu, er sumir menn halda fram, að „heimsmenningin" sje rnikiu meira verð, dýrðlegri og eftirsóknarverðari en öll þjóðmenning. Allri þjóðrækni cigi þess vegna að útrýma og uppræta alla ættjarðarást!*) — Þessi kenn- ing gæti haft örlítinn rjett á sjer, sem hugsjón einhverra herjötna (mjer liggur við að segja herskálka) en öllu frjálsu eðli þjóðflokka og landslýðu er hún ósegjanlega andstæð, og þó að sömu mpnn færi til sfns máls að þjóðrækni og ættjarðarást sje misnotuð í stríði, eða leiði til þess, þá er sú skoðun einnig staðlaus. Það er ekki þjóðrækninnar nje ættjarðarástar sök, þótt menn kunni aö misnota hana. Flestar góðar gáfur mannanna, ef ekki allar, má misnota. — Það felst heldur engin sönn ætt- jarðarást í þvf að drepn útlendan mann, nje að fara *) Maðui einn lærður og all-kunnur, hefir nýlega á fjölrnennum fundi farið hinurn allra óvirðuiegustu orðum um ættjarðarártina.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.