Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1930, Side 5

Skinfaxi - 01.11.1930, Side 5
SKINFAXI 165 anir um starfsemi félagaima. Þá eiga menn að fræð- asl á fundunum, hverir af öðrum, einkum um þjóð- leg efni, og fá þar til bragðbætis bolla skemmtun og göfgandi. Verða þá fundirnir andleg nautn og næring félagsmönnum. Enn verða fundir U. M. F. að vera verkleg æfing fyrir félagsmenn, í því að mynda sér rökstuddar skoðanir á málum, koma þeim skoðunum í skipulegan orðabúning og flytja öðrum þær skilmerkilega og djarflega. Er slikt nauðsvnleg- ur undirbúningur þess, að gerast starfbæfur þegn þjóðfélagsins. — Hver félagsmaður verður jafnan að sækja j)rennt á fundi l'élags síns: Brýningu, fræðslu og skemmt- un. Þetta verður að bafa hugfast, þegar fundir eru undirbúnir. Jafnan verður að vera um það séð, að næg verkefni liggi fyrir bverjum fundi. Hvert félag fær nokkurn bluta fundarefna sinna svo að segja af sjálfu sér, þar sem eru umræður um framkvæmdir félagsins. Jafnan verður þó nokkru við að bæta, og því meiru, sem fundir eru oftar: um- ræðumálum,fræðsluefnum og skemmtiatriðum. Aldrei þarf jafn-víðfeðm félög sem U. M. F. að skorta bugð- næm fundarefni og kjarngóð. U. M. F. bafa ýmsar aðferðir við að afla sér fund- arefna. Skulu tvær nefndar, þær er eg veit bezt bafa gefizt. Kosin er, eða fremur skipuð, nefnd fyrir livern fund, og sér bún um, að nóg sé á dagskrá þess fund- ar. Verða þá nefndarmenn oftast að skifta á milli sín, að liafa eitthvað fram að flytja. Getur það l)less- ast vel, ef starfhæfir menn og samvizkusamir eiga blut að máli. En el' nefndarmenn gleyma að búa undir fundinn, gera það slælega eða varpa áhyggjum bver á annan, þá verður fundurinn tómlegur, og get- ur það spillt fundasókn og ábrifum, ef svo fer oft. Betra mun vera, að gerð sé áætlun um fundaefni

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.