Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1930, Page 6

Skinfaxi - 01.11.1930, Page 6
166 SKINFAXI fyrir iieill eða (fremur) hálft starfstímabil í senn. Stjórnin getur samið verkefnaskrá, eða þá sérstök nefnd. Mun hið síðara betra. Við það dreifist starl'- ið á fleiri og fást við það meiri tilbreytingar. Verkefnanefnd verður að hafa vald til þess, að skipa félagsmönnum, og verður að ganga ríkt eftir, að iiver leysi af hendi það, sem honum er fyrir sett, ef eldci hindra gild forföll. Af því leiðir, að gæta verður þess vel, að skipa engum það verk,.sem hon- um er ofvaxið. Eklci mega verkefni heldur vera of létt. Verður hér að rata meðalhóf, en það er vandi. Bezl mun, að láta nýbyrjendur byrja á að lesa upp; næst kemur að segja sögu; þá að flytja erindi eða reifa mál. Velja skal hverjum l'élaga viðfangsefni eftir skapgerð hans og hugðarefnum, svo sem verða má. Verkefnanefnd hefur störf sín á þvi, að taka til, hve margir fundir lialdnir skulu á tímabili því, er hún semur skrá yfir. Þar næst ritar nefndin, eða nefndarmenn leggja fram, skrá um viðfangsefni þau, er menn vilja fá tekin fyrir. Má svo velja úr þeim liæfilega mörg verkefni og finna heppilegan mann til livers verks. Loks er verkefnum jafnað niður á fundina. Hæfilegt inun að gera ráð fyrir þremur dagskrár- liðum á fund hvern: umræðumáli, fræðandi erindi og skemmtiatriðum. Flokka má umræðumál i tvennt: a. Dagskrármál U. M. F., svo sem íþróttir, skógrækt, verndun móður- málsins o. s. frv. 1). Mál, sem rædd, eru lil gamans og þess gagns, að æfa rökhugsun, talandi og framsetn- ingu í ræðuformi, t. d.: Hvaða árstíð er skemmtileg- ust? Hvor var merkari, Bergþóra eða Hallgerður? o. s. frv. Gott er, að taka umræðumál af báðum flokkum, og má þó siður vanta hin fyrtöldu. Mál af seinna flokki reynast þó ef til vill betur til þess, að draga

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.