Skinfaxi - 01.11.1930, Qupperneq 8
168
SKINFAXI
lægt áramótum. Hið síðara er heppilegra vegna þess,
að skýrslur til U. M. F. I. eru miðaðar við almanaks-
ár. Er hægra og vafningaminna fyrir einstök félög,
að miða reikningsár sitt og skýrslugerð þá, er fylgir
aðalfundi og stjórnarskiftum, við sama tíma. Ættu
aðalfundir allra U. M. F. að vera um sama leyti, t.
d. í öndverðum janúar.
U. M. F. ættu að tíðka útifundi vor og sumar, þegar
tíðarfar og ástæður leyfa. Skulu þeir haldnir á fögr-
um stað og friðsælum, þar sem menn geta setið i
hvirfingu.
Fyrir útifundi skal velja umræðuefni, er lirifa
menn og ná til hjartans — gagn og sóma ættjarðar-
innar, ræktun lýðs og lands o. s. frv. — en eigi er
lieppilegt, að ræður séu langar. Þá skal og nota söng
örlátlega. Leiki og vikivaka má nota til hvildar og
tilbreytingar, en dans á ekki við slíka fundi.
Á fögrum stöðum og helgum eiga menn að fá næði
nokkurt til hljóðlátrar atiiugunar og tilbeiðslu nátt-
úrunnar. —
Kvöldvökurnar með vinnu, raddlestri og rímna-
kveðskap voru skóli feðra vorra og mæðra um marg-
ar kynslóðir. Þær eiga sér ítök i hugum vorum og
lijörtum, þeirra, er nú lifum. Þess vegna ættu U. M. F.
að liafa kvöldvökur við og við.
Félagar koma saman með verkefni sín og sitja með
veggjum, allt í kring i húsinu. Stúlkur sauma, prjóna,
spinna, bæta, stagla o. s. frv. Piltar tvinna á snældur,
tálga, skera út, flétta reipi, ríða net o. þh. Allir verða
að hafa verk. Einn situr i miðjum sal og les eða kveð-
ur fyrir alla. Rétt er, að góðir lesarar og kvæðamenn
skiftist á um það. Lesa skal islenzk efni; ekki þýddar
sögur og sízt rusl.
Gefa ætti kaffi á miðri vöku. Verður því bezt fyr-
ir komið og ódýrast á þann liátt, að hver komi með
brauð, sykur, mjólk, kaffimél og bolla heiman frá