Skinfaxi - 01.11.1930, Blaðsíða 13
SKINFAXI
173
Noregsför ungmennafélaga.
Eftir Guðbjörn Guðmundsson.
II.
Hátíðardaginn, 29. júli, ern Niðaróssbúar árla á
ferli, til að komast nægilega snemma til Stiklastaðar,
á þessa minningarmerku liátíð, haldna á sama stað
og Ólafur lielgi fétl þennan dag fyrir 900 árum. Kl.
() koma iim borð að sækja okkur Jan Hauger, formað-
ur Niðarós ungdomslag, Martin Asphaug, kennari, sem
liér var 1924 og þriðji maður úr stjórn félagsins.
Fóru þeir með okkur á Bondeheimen, — en svo nefn-
ast flest veitinga- og gistihús, sem ungmennafélög í
Noregi reka. Yar þar snæddur árbítur í skyndi og
síðan litazt um í nágrenninu örskannna stund, en
kl. 8,34 áttuin við fara í járnbrautarlest til Verdal
og síðan á bil til Stiklastaðar. Fór fyrsta lestin kl.
6,10 um morguninn og 10. lestin kl. 11,05, en venju-
lega fara lestir þessa leið tvisvar á dag, kvölds og
morgna. Auk þessarra 10 lesta var svo óslitinn straum-
ur af bifreiðum eftir veginum, enda var um liádegi
búið að flytja um 30 þúsundir manna frá Niðarósi
til Stiklastaðar, og er sú vegalengd þó um 100 kíló-
metrar. Ilauger fór með okkur til Sliklastaðar, leið-
beindi okkur og sá vel fyrir öllum okkar þörfum, og
var það allt fyrirfram undirbúið. í Þrændalögum er
meira láglendi en á Vesturlandinu og nutum við því
lietur útsýnis en áður. Eru hér margir sögulegir stað-
ir, vel þekktir úr okkar sögum. Rétt austan við Niðar-
ós eru Hlaðir, þar sem í heiðni voru haldin aðalblót
Útþrændalaga og þar sem Iiákon jarl fórnaði syni
sínum, sem talið er síðasta mannblót í Noregi. Á
Hlöðum er nú snotur kirkja, er blasir við bænum.