Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1930, Side 22

Skinfaxi - 01.11.1930, Side 22
182 SKINFAXI anna, var hætt að neyða Islendinga til að notast við farkosti, er gripum einum myndi boðlegir þykja í öðrum menntalöndum, er þeir þurftu að ferðast milli liafna. Sameinaða gufuskipafélagið danska þóttist híða tjón á Islandsferðum og heimtaði landssjóðs- styrk til þeirra, meðan íslendingar voru upjj á það komnir um farkosti. En því þótti borga sig að senda hingað ný skip og góð, þegar við íslenzk skip var að keppa. Langt er frá þvi, að alþjóð manna hafi gert sér ljóst, live afarmikla þýðingu það hefir fyrir viðreisn íslands og sjálfstæði, að vér séum sjálfum oss nógir um siglingar. /Roskna kynslóðin í landinu er svo vön því, að nota erlend skip til ferða og flutninga, að hún sér ekkert við það að athuga. Aldönsk skip fara tvisvar í mánuði milli Reykjavíkur og Akureyr- ar, fram og aftur, með viðkomu á aðalhöfnum. Þeg- ar Esja hóf ferðir sömu leið s.l. vor, átaldi blað eitt það með þeim forsendum, að slíkt væri lireinn óþarfi, því að dönsku skipin önnuðust þessar ferðir! Slíkur er ennþá metnaður sumra íslendinga, að þeir telja rétt og gott, að erlend þjóð liirði ágóða af því, að flytja íslendinga meðfram ströndum íslands. Stöku menn lialda jafnvel, að það sé fínt, að ferðast á dönskum fleytum og tala afbakaða dönsku við hort- uga þjóna. Og ekki hafa þau „Dronning Alexandrine“ og „Island“ hið danska farið tóm milli hafna, þó að Esja okkar liafi verið á ferð í sama mund, og eigi fullskipuð. Ættu þó allir að geta séð, að slíkt er naumast skammlaust. Svo má illu venjast, að gott þyki. Má það afsök- un vera þeim rosknu mönnum, sem eigi hirða um það, hvort þeir nota íslenzk skip eða erlend, er þeir þurfa að fara eitthvað eða flytja. En æskan er eigi bundin vanaböndum. Og hún er lieit, réttsýn og ör til framkvæmda. Hér á hún verk fyrir höndum. Hún

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.