Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1930, Page 25

Skinfaxi - 01.11.1930, Page 25
SKINFAXI 185 Félagsmál. Hindindi. Skuldbinding U. M. F. í. hefst á heiti uni algerða afneitun áfengra drykkja. Er þar með slegið föstu, að áfengi og hug- sjónir U. M. F. geti enga samleið átt. Hlutverk U. M. F. er, að hjálpa til að gera æskumenn að sem mestum mönnum, beztum íslendingum, nýtustum borgur- um, og land vort betra og byggilegra. Drengskapur, vitsmun- ir, viljaþrek og líkamsorka eru þeir kostir manna, sem mest riður á, að njóti allra tækifæra að þroskast og aukast. Allt það, sem rýrir þessa mannkosti, eða hindrar þá i að njóta sin, er vargur í véum og háskalegur óvinur U. M. 1". og heil- brigðrar æsku. Áfengi sljóvgar dómgreind manna, svo að þeim verður óljóst, hvað drengilegt er og hvað ekki. Það firrir menn vitsmunum að meira leyti eða minna, meðan áhrifa þess gætir. Það deyfir viljaþrek manna, svo að þá skorlir mótstöðuafl gegn freistingum, og þeir láta nauðsynjaverk óunnin. Loks skerðir áfengi líkamsþrek manna og spillir heilsu þeirra, ef til lengdar er neytt. Ennfremur bakar það þjóð- inni gifurlegt fjárhagstjón, hæði beint, þar sem er andvirði áfengis, og óbeint, þar sem eru skemmdir þær og axarsköft, sem af ölvuu stafa. Væri öllu því fé betur varið til þjóðbóta og landbóta, en til þess vantar jafnan fé, sein kunnugt er. U. M. F. verða að fræða menn um skaðsemi áfengis fyrir einstaklinga og þjóðarheild, og gera félagsmönnum það ljóst og efalaust, að áfengisnautn og hugsjónir U. M. F. stefna sitt i hvora átt. Þetta má gera með fyrirlestrum og umræðum, og sanna má það með dæmum úr dáglegu lifi. Þá verða stjórn- ir félaga og dómnefndir að gæta þess stranglega, að bind- indisheit sé ekki brolið, og' krefja fullra yfirbóta, ef brotið er. Taka verður á brotum með festu og einbeitni, en þó með fullri vinsemd. Fara verður með þann, er brotlegur gerist, sem vin, er orðið hefir fyrir óhappi, en eigi sem afbrota- mann né andstæðing. Skulu öll slík mál vera í höndum fá- mennrar dómnefndar, en ekki félagsheildar. Heppilegast mun, að útkljá brotamál með virðulegum áminningum og endur- nýjun heita. En ef brotlegir félagar vilja ekki eða treystast ekki að hverfa frá villu síns vegar, verða þeir að víkja úr félaginu. Annað tjáir ekki fordæmis vegna og heiðurs félag- anna. Riður U. M. F. mjög á, að hreinsa skjöld sinn i þessu

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.