Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.09.1966, Qupperneq 7

Skinfaxi - 01.09.1966, Qupperneq 7
RÆTT VTÐ INGVA ÞORSTEINSSON MAGISTER Ingvi Þorsteinsson Gróðurvernd og landgræðsla Flestir munu kannast við frásögn Ara fróða um að ísland hafi verið „viði vaxið milli fjalls og fjöru“, þegar íandsmenn tóku að flytjast hingað fyr- ir nærri 1100 árum. Þótt sá skógur hafi ekki allur verið hávaxinn, telja sérfræðingar sannanlegt, að 50—60% af yfirborði landsins hafi verið gróið land á landnámsöld. Ógróin svæði voru þá aðeins 25—30% af landinu. Nú geta allir sem vilja, sannfærzt um þá staðreynd, að gróin svæði á Islandi nema aðeins 25 prósentum af yfirborði landsins, en gróðursnauðu svæðin eru orðin 55—60% af yfir- boi-ðinu eða meira en helmingi víð- áttumeiri en en gróðurlendið. Þannig hefur auðnin stækkað um helming síð- an á landnámsöld. Þar við bætast þau svæði, sem jöklar, ár og vötn hylja, og þekur því gróður aðeins fjórðung Is- lands í dag. Hvað hefur orðið af skóginum, gróðrinum og jarðveginum? — Óblíð veðrátta, eldgos og jökul- hlaup hafa átt sinn þátt í eyðingunni, en íbúar landsins, bæði menn og bú- fé, eiga þar þó drýgstan þátt. Þegar búið var að fella skóginn, var horfið það skjól, sem hlífði lágvaxnari gróðri og sú vörn þrotin, sem skógurinn veitti gegn veðrum og vindum og vatnsgrefti í jarðveginum. Síðan hefur gróðurinn og jarðvegur- inn verið að fjúka og renna undan fót- um Islendinga. Gróðrinum á hálendinu hafa landsmenn heldur ekki hlíft. Hon- um eyddu þeir með ofbeit sauðfjár. Eftir standa naktar klappir, auðir melar, urð og grjót. Þetta er saga hinnar óhugnanlegu rányrkju á Islandi. Við skulum þó fara varlega í að saka forfeður okkar um að hafa rányrkt iandið. Erlent vald og áþján, ásamt þekkingarskorti, sem þessu fylgdi, bjó þeim ekki önnur örlög en þau, að verða að berjast upp á líf og dauða SKINFAXI 7

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.