Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1966, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.09.1966, Blaðsíða 18
staðan í sumarbúðunum voru íþróttir. Kennsla fór fram í handknattleik, sundi, knattspyrnu, frjálsum íþróttum, smávegis í glímu og ýms- um leikjum. A hverju kvöldi voru kvöld- vökur, sem þátttakendur undirbjuggu og sáu um að mestu leyti sjálfir. Aherzla var lögð á prúðmennsku og góða umgengni. Þá var hjálp í viðlögum kynnt, umferðafræðsla veitt, komið á helgistundum og flutt erindi um skaðsemi tóbaks og áfengis. UMSE hefir staðið fyrir eftirtöldum mót- um á árinu: Skíðamóti, sundmóti, bridgemóti, 6 frjálsíþróttamótum, þ.á.m. Norðurlandsmóti, handknattleiksmótti kvonna, knattspyrnu- móti, hraðkeppni í knattspyrnu, skákmóti. í heild hefir verið ágæt þátttaka í þessum mótum. f desember verða hraðskákmót og innanhússmót í frj. íþróttum. Sambandið hefir sent keppendur á mörg mót utan héraðs, aðallega í frjálsum íþrótt- um og knattspyrnu. Á undanförnum árum hefir UMSE beitt sér í æ ríkara mæli fyrir bættu skemmtana- lífi ungs fólks. Á árinu hafa verið haldnir nokkrir æskulýðsdansleikir, vel sóttir, þar sem eftirlit hefir verið haft með, að áfengi væri útilokað, og hefir tekist vonum betur að ná þvf marki. Sú þróun er gleðileg, að samkomur þær sem UMSE stendur fyrir fara jafnan fram með menningarbrag. Sambandið stóð fyrir fjölmennu bindindismóti í Vagla- skógi s.l. sumar í samvinnu við nokkur fé- lagasamtök á Akureyri, Þingeyjarsýslu og Eyjafirði. Þetta var þriðja árið í röð sem efnt var til Bindindismóts í Vaglaskógi og fór það prýðalega fram, sem hin fyrri. í desember er ákveðin bindindisfræðsla í barna- og unglingaskólum héraðsins. Fyrir nokkrum árum hóf Jóhannes Óli Sæmundsson fyrrverandi námsstjóri á Akur- eyri söfnun örnefna í Eyjafjarðarsýslu. Síð- ar varð að samkomulagi að UMSE tæki á sig fjárhagslega ábyrgð viðvíkjandi skráningu örnefnanna og frumútgáfu beirra. Standa málin nú þannig, að þessi frumútgáfa, sem er 10 eintök, er nær fullfrágengin. Hvort lagt verður í stærri útgáfu að sinni er ekki ráðið, en segja má að farsællega hafi tekist að forða örnefnum Eyjafjarðarsýslu frá glötun. Stjórn Ungmennasambands Eyjafjarðar skipa nú: Sveinn Jónsson form., Haukur Steindórsson, Birgir Marninósson, Bolli Gúst- avsson og Eggert Jónsson. Framkvæmdastj. er Þóroddur Jóhannsson. Sumarbúðir HSK S.l. sumar starfrækti Héraðssambandið Skarphéðinn sumarbúðir um hálfsmánaðar- tíma að Laugarvatni. Námskeðin voru tvö, fyrir drengi frá 20. júní til 26. júní, og fyrir stúlkur frá 27. júní til 3. júlí. Aldur þátttakenda var frá 8 til 14 ára, og þátttakendafjöldi tæpir 60 unglingar, 27 drengir og 3 stúlkur. Forstöðumaður sumarbúðanna var Þórir Þórir Þorgeirsson íþróttak. á Laugarvatni, en aðalleiðbeinendur Kristín Guðmundsdóttir í- þróttakennari, Guðmundur Guðmundsson formaður Umf. Samhygðar, og Eiríkur Ein- arsson frá Umf. Gnúpverja. HSK naut ómetanlegs stuðnings og vel- vilja allra heimamanna á Laugarvatni við þessa starfsemi. Sumarbúðirnar fengu til um- ráða öll húsakynni barnaskólans á staðnum, á efri hæð var svefnpláss þátttakenda, þar var og komið fyrir leiktækjum til tómstunda- gamans, í samkomusal á efri hæð fóru fram kvöldvökur með fjölbreyttu efni til skemmt- unar og fróðleiks. Forstöðukonur Húsmæðraskóla Suður- lands, sáu þáttakendum sumarbúðanna fyrir mat af sinni alkunnu rausn. íþróttir og útivist voru að sjálfsögðu aðal þátturinn í þessari starfsemi. Lögð var áherzla á að kynna unglingunum sem flestar grein- ar íþrótta, og fór kennsla öll fram í húsa- kynnum, og íþróttamannvirkjum íþróttakenn- araskóla fslands við hinar beztu aðstæður. í lok námskeiðanna var efnt til íþróttakeppni 18 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.