Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1966, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.09.1966, Blaðsíða 11
’.Melgrasskúfurinn harði.“ Melgrasið er merkileg iurt, og hefur unnið stór svæði fyrir gróðurríki íslands. skjóli kjarrskógarins þreifst grósku- tnikill jurtagróður, og þótt gróður kyrfi ekki alls staðar eftir að skóginum var eytt, breyttist hann í kyrkings- ^egri og nytjaminni gróður. Eldgos eftir landnám hafa einnig eytt skóg- 1JiUm og öðrum gróðri. Undir ösku- ^ögum frá því um árið 1000 finnast skógarleifar t.d. mór, sem er ekkert annað en skógarleifar frá landnáms- öld. Nú er sáralítið eftir af hinum gamla skógi, eins og kunnugt er, en á stöku stað hefur hann haldið velli meira að Segja á hálendi. Sá skógargróður, sem vex í mestri hæð yfir sjó, er í Karlsdrætti við Langjökul og í Gljúf- skinfaxi urleit á Gnúpverjaafrétti, hvor- tveggja í um 500 m. hæð. Á landnámsöld voru um 30% af gróðurlendinu þ.e. 20—25 þús. km2, vaxið skógi og kjarrskógi. f dag er flatarmál skóganna aðeins 1 þús. km2. Uppblásturinn er aðallega á mó- bergssvæðinu, þ.e. á Suðurlandi og á hálendinu þar uppaf. Hinn þurrlendi jarðvegur á þessum slóðum hefur lít- ið mótstöðuafl gegn vindum og öðr- um ágangi. Hann er laus í sér, léttur, grófgerður og leirlaus. Þess vegna verður hann eyðingaröflunum auð- veld bráð, ef ekkert er gert til að vernda hann. — Hvað er helzt hægt að gera, auk þess að minnka beitina, til að vernda gróðurlandið og stöðva eyðing- una? — Til þess að hefta sandfok, sem sverfur jarðargróðurinn, gefst vel að slá upp lágum skjólgörðum úr timbri þvert á vindáttina. Við það myndast smáhæðir, sem síðan er sáð í melfræi. Sums staðar verður að fella rofabörð, sem vindurinn á of greiðan aðgang að. Þar sem uppblástur er mikill, eða þar sem sandgræðsla fer fram, verður að girða landið, því að sauðkindin sækir í nýgræðinginn. Þannig hafa verið afgirtir um 100 þús, hektarar lands til þessa á vegum Sandgræðslu fslands. Ég er ekki í neinum vafa um, að allir landsmenn vilja að eyðingin verði stöðvuð, og að þróuninni verði snúið við, þannig að ísland taki að stækka sem nytjaland, en haldi ekki áfram að minnka. En hversu margir eru reiðu- búnir að leggja fram raunhæfan skerf í þessu starfi? Það sem Landgræðsl- 11

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.