Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1966, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.09.1966, Blaðsíða 9
starfi hans við gróðurrannsóknir sé varið. — Síðan 1960 hefur verið unnið samfellt að gróðurmælingum á afrétt- arlöndum bæði fyrir kortagerðina og til að kanna beitarþol afréttanna. Á hverju sumri höfum við ferðazt um öræfin, 6—10 manns, til að mæla og skilgreina þann gróður sem fyrirfinnsí þar. Grunnkortin eru gerð eftir loft- myndum, og gróðurinn og tegundir hans síðan merktur inn á það. Þetta eru því skýr og áreiðanleg kort. Út frá þeim er auðveldlega hægt að reikna flatarmál gróðurlendisins, og á þeim má auðveldlega sjá hverskonar gróður er á hverjum stað, og einnig gerð gróðurlausa svæðanna. Þegar þannig hefur verið rannsak- að, hversu mikill gróður er á öræfun- um og hvers eðlis hann er, er hægt að reikna út beitarþolið. Vitað er hversu margar fóðureiningar hver gróðurlendistegund gefur af sér miðað við flatareiningu, og þar sem fóður- þörf sauðfjárins er einnig kunn, má reikna út hversu marga beitardaga hver afréttur þolir. Kominn er góður skriður á gerð gróðurkortanna, og er áformað að 10 kort í mælikvarðanum 1:40000 komi út árlega framvegis. Það er von okkar, að a.m.k. allir bændur eignist þessi kort, því þau hafa augljóst hagnýtt gildi fyrir þá, og til allra þeirra, er unna landi sínu, eiga þau brýnt er- indi. — Hefur of mörgu fé verið beitt á af réttina ? — Vafalaust mjög víða. Það liggur í augum uppi, að ofbeit þýðir lélegri afurðir af fénu, og á þessu hafa bænd- ur hvarvetna fullan skilning nú orðið. Það er líka fyrst og fremst þeirra hags- munamál, að úr þessu verði bætt. Það þarf að létta af afréttunum allmik- Séð yfir annað svæði, sem er að verða uppblástrinum að bráð á afrétti Biskups- tungnamanna. Börðin eru opin fyrir ágangi veðra og vinda. í baksýn er Búrfell. SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.