Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1966, Síða 24

Skinfaxi - 01.09.1966, Síða 24
LEIKIR OG SKEMMTAN Flöskudans 6—8 tómum flöskum er raðað í röð á gólfið með jöfnu millibili. Leikstjóri biður einhvern samkvæmisgestann að gefa sig fram, sem treystir sér til að stíga yfir flöskurnar með bindi fyrir augum, án þess að fella nokkra þeirra. Meðan verið er að binda tryggilega fyrir augun á sjálfboðaliðanum taka tveir til kvaddir trúnaðarmenn flösk- urnar snarlega burtu. Síðan leggur ,,flöskudansarinn“ af stað. Með var- færni og hjákátlegum hreyfingum leggur hann sig fram um að stíga yfir hverja ímyndaða flösku af annarri, og áhorfendur hvetja hann með uppörv- unarópum og kátínu. Ef áformað er að láta fleiri fórnar- dýr dansa flöskudansinn, verður að loka þau inni í sérstöku herbergi áður en gamanið hefst, og verður leikstjóri að sjá svo um, að þeim berist engin njósn af þeim brögðum, sem beitt er. Diskaleikur Þetta er e.t.v. nokkuð glannafenginn leikur, en menn hafa oft ekki vílað fyrir sér að grípa til hans á gamlárs- kvöldsskemmtunum. Hið saklausa fórnarlanmb í leiknum kemst tæplega hjá því að fá sér steypibað í spariföt- unum. Einn gárungi í hópnum lýsir yfir því, að hann geti neglt eða límt súpu- disk eða ávaxtaskál fulla af vatni við loftið í stofunni. Hann velur sér að- stoðarmann, og fær honum kúst sem hjálparverkfæri. Síðan kemur „diska- meistarinn" með smástiga eða stól og súpudiskinn. Þegar hann hefur klifrað upp á upphækkunina þrýstir hann diskinum varfærnislega að loftinu og biður aðstoðarmanninn að ýta með kústsskaftinu á botninn á diskinum og 24 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.