Skinfaxi - 01.02.1973, Qupperneq 5
Víðtækt starf Félagsmálaskóla UMFÍ.
FÉLAGSMÁLASKÓLI
UMFÍ
Rúmlega 300 manns
á námskeiðum skólans í vetur
Eftir námskeið fyrir félagsleiðtoga
sem haldið var í Leirárskóla í okt. 1972
°g greint var frá í Skinfaxa 4. tbl. 63.
árgangs, hafði UMFÍ og aðildarfélögin
eignast 22 félagsmálaleiðbeinendur sem
viðurkeningu höfðu frá Æskulýðsráði
ríkisins til þess að standa fyrir félags-
málanámskeiði og nota það fræðsluefni,
sem ÆRR hefur gefið út.
Nú væri ekki úr vegi að líta aðeins
yfir starfsemi ungmennafélaganna á
þessum vettvangi síðan umrætt kennara-
námskeið var haldið og athuga hvort
það hefur orðið sú hvatning og uppörf-
un sem til stóð.
Fyrri reynsla okkar hafði verið sú,
að mjög erfitt reyndist að fá leiðbein-
endur þótt áhugi væri nægur hjá ein-
stöku félögum og samböndum til að
efna til slíkra námskeiða, sérstaklega var
skortur á leiðbeinendum úti á lands-
Eyggðinni.
Tilgangurinn með námskeiðinu á
Leirárskóla var því að leysa þennan
vanda. Til glöggvunar birtum við hér
lista yfir þá ungmennafélaga, sem fengu
Viðurkenningu ÆRR að námskeiðinu
loknu:
1 Guðmundur Gíslason UMSK.
2 Klemenz Halldórsson UMSB.
3 Guðmundur Sigurmonsson HSH.
4 Unnar Þór Böðvarsson HHF.
5 Magnús Ólafsson USAH.
6 Ingimundur Ingimundarson UMSS.
7 Valdimar Bragason UMSF.
8 Þóroddur Jóhannsson UMSE.
9 Amaldur Bjamason HSÞ.
10 Níels A Lund UNÞ.
11 Helgi Jóhann Þórðarson UÍA.
12 Sigvaldi Ingimundarson USÚ.
13 Karl Eysteinn Rafnsson USÚ.
14 Helgi Gunnarsson USVS.
15 Jóhannes Sigmundsson HSK.
16 Guðmundur Guðmundsson HSK.
17 Hólmbert V Friðjónsson UMFK.
18 Hafsteinn Þorvaldsson UMFÍ.
19 Sigurfinnur Sigurðsson UMFI.
20 Pétur Einarsson LTMFÍ.
21 Sigurður Geirdal UMFÍ.
22 Sigurður Guðmundsson UMFÍ.
í janúar s. 1. sendi ÆRR út bréf, þar
sem tilkynnt var að kennsluefni það, sem
endurskoðað hefði verið síðan á Leirár-
námskeiðinu lægi nú fyrir í möppu „Fé-
lagsleiðtoganámskeiði I“, og væri ÆRR
reiðubúið að styrkja hvert námskeið,
sem haldið væri um kr. 7.500,00, enda
væri vissum skilyrðum fullnægt, s. s. að
námskeiðið stæði minnst í 15 tíma, að
ÆRR hefði viðurkennt kennarann, þátt-
skinfaxi
5