Skinfaxi - 01.02.1973, Síða 17
STARTPLATSEN
PÁ RAKSTRÁ'CKA
Hlaupabrautin, rásblokkirnar og afstaða
handanna við ráslínuna.
SPRiNTERSKO
eða samtímis og skotið er, þá hefur
viðkomandi stolið a. m. k. 2/10 úr
sek af keppinaut sínum, en það
er sá tími, sem það tekur heila-
boðin að berast fljótast til vöðvanna og
þá að hefja hreyfinguna í spyrnunni.
Þetta hefur verið marg mælt á mjög
fulkominn og vísindalegan hátt.
Þegar ræst er skal reynt að halda stöð-
unni viðbúnir misjafnlega lengi og gera
með því hlaupurunum skiljanlegt að þau
þurfa alltaf að vera vel viðbúin að hefja
hlaupið, strax eftir að skipunarorðið hef-
ur verið gefið og allt aftur í 3—5 sek.
eftir skipunina.
Viðbragðið þarf svo að æfa aftur og
aftur , þar til þau eru vel gerð og snögg.
Gengið skal og staðan tekin, eftir skip-
un, farið upp í viðbúnir-stöðuna, einnig
eftir skipun, og síðan brugðið við eftir
skipun, og hlaupið út á fullu, og þeir,
sem það ekki gera, látnir vita af því
að til þeirra og leti þeirra hafi sést.
Hlaupalag einstaklingsins er ekki auð-
velt að kenna og oftast mjög erfitt að
koma því við í skólakennslu. Þó verður
alltaf að hafa hlaupalagið í huga og
reyna að fá börnin þegar í upphafi til að
hlaupa með vel samæfðum armhreyfing-
um og skrefum, með sterklegum anna-
og fóthreyfingum og fullri fráspyrnu fót-
ar í skrefinu.
Til þess að gera æfingarnar skemmti-
legri fyrir nemendurna eru keppnir yfir
mismunandi langar hlaupaleiðir settar
inn í tímana og gefa mjög góða raun,
skapa mikinn áhuga, og ef þetta er gert
í boðhlaupsformi skapar það mjög jafna
þátttöku. Sterklega kemur til greina að
láta þá, sem einhverra hluta vegna geta
ekki hlaupið með, vera dómara og
ræsa.
Við kennslu viðbragðs, eða viðbi’agðs-
keppni, þarf að fylgjast vel með því,
hvort um þjófstart sé að ræða eða ekki.
Með rannsóknum á kvikmyndum hefur
komið í Ijós að það sem fyrst hreyfist í
viðbragðinu er hællinn á aftari fæti. Með
þetta í huga er rétt að mæla með því að
ræsir taki sér stöðu aftan við eða ská-
hallt aftan við, ef mögulegt er. Ef ekki
er hægt að taka þessa stöðu, er næst
bezta staðan framan við og til hliðar.
Sá sem hreyfir sig um leið og skotið er,
hefur þjófstartað, og þótt hann fari ekki
á undan skotinu, hefur hann grætt 2/10
úr sek. af samkeppendum sínum, sem
hófu hreyfinguna þegar þeir heyrðu
skotið.
Guðmundur Þórarinsson.
SKINFAXI
17