Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1973, Síða 19

Skinfaxi - 01.02.1973, Síða 19
arinn Jón forseti strandaði við Stafnes 1928, en 15 menn fórust. Frímann synti frá skipinu gegnum brimgarðinn til lands. Ætíð hafði hann miklar mætur á sundíþróttinni og sömuleiðis á íslenzku glímunni sem hann lærði einnig á ungl- ingsárunum austur þar. Þótt Frímann væri sjálfur afreksmað- ur í íþróttum, þá var langt í frá að hann einblíndi á afreksmarkið eitt. Hann lét sig félagsmál íþróttahreyfingarinnar miklu skipta. Um það vitna bezt skrif hans á íþróttasíðu Þjóðviljans og í Vals- blaðinu. Hann skynjaði vel þá hættu, sem íþróttafélögunum stafar af minnk- andi félagsstarfi og skorti á félagsanda. Sjálfur vann hann manna ötulast að fé- lagsmálunum. Víðsýni hans og þekking á íþrótta- og félagsmálum var geysimik- ill. Hann fann jafnan hvar skórinn kreppti að, og alltaf var hann hvetjandi og stórhuga. Þegar hann var spurður hvað honum hefði fundizt erfiðast við að eiga í starfi sínu sem íþróttafrétta- maður, sagði hann í áðurgreindu við- tali: „Það hefur angrað mig mest, hvað menn úr íþróttahreyfingunni úti á landi eru tregir til að segja frá því sem er að gerast í þeirra héraði. Þetta er skaðleg hlédrægni, að skynja ekki áróðursgildi frétta fyrir félag sitt, samband eða hér- að. Mér finnst þurfa að flytja meiri og berti íþróttafréttir af landsbyggðinni, en það er ekki hægt nema í samvinnu við héraðsmenn á hverjum stað.“ Þessi um- mæli eiga svo sannarlega við enn í dag. Frímann hafði ákveðnar skoðanir um íþróttafréttamennskuna eins og annað. Aðspurður sagði hann að aldrei mætti gleyma hinni félagslegu hlið íþrótta- starfsins; í fréttaöflun sinni mætti í- þróttafréttamaðurinn aldrei missa sjón- ar á hinu góða markmiði íþróttanna. Um þetta leyti, sem ívitnað viðtal átti sér stað og alllengi á eftir, ritaði Frí- mann merkan greinaflokk í Þjóðviljann um gamla íþróttamenn undir samheit- inu „Hvar eru þeir nú?“. Margir þess- ara manna eru nú látnir, en þarna eru saman komnar merkar heimildir um ís- lenzka íþróttamenn og íþróttasögu. Hluti af þessum greinum varð stofninn í bók Frímanns „Fram til ormstu“, sem út kom 1969, en fæstar þeirra hafa birzt annars staðar. Aðra bók, „Keppnis- menn“, gaf Frímann út 1971. Með áhuga sínum og uppörvandi kjarki hafði Frímann jafnan heillavæn- leg áhrif á alla þá, sem hann starfaði með. Þótt hér hafi mest verið dvalið við starf hans á sviði íþrótta, þá fór því fjarri að áhugamál hans takmörkuðust við þær. Frímann hafði vakandi áhuga á þjóðmálum og hann var mikill náttúru- unnandi. Umhverfi sumarbústaðar þeirra hjóna í Mosfellsdal sýnir að þar fór maður sem kunni að rækta garðinn sinn. E. Þ. SKINFAXI 19

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.