Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1975, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.10.1975, Blaðsíða 4
Forsíðumyndin er tekin á landsmótinu á Akranesi. Gunnar St. Pálsson tók myndina af hinni spcnnandi boð- hlaupskeppni karla. Fréttir af landsmótinu 13 ára Evrópumeistari Sá íþróttaviðburður sem einna mesta athygli hefur vakið í heiminum á þessu ári er sig- ur Nadiu Comaneci á Evrópumeistaramóti kvenna í fim- leikum. Hún er aðeins 13 ára, en samt var þetta ekki fyrsti stór- sigur hennar í þessari íþrótta- grein. Myndin er af Nadiu Coma- neci með sigur- verðlaunin á Evrópumótinu. Sjá grein bls. 44. Þing UMFÍ 29. sambandsþing UMFI verður hald- ið að Varmalandi í Borgarfirði 15.—16. nóvember. Verður þar rætt um starfsemi ungmennafólaganna síðustu tvö árin og lögð á ráðin um starfið framundan. Með- al aðalmála þingsins verða fjármál og erlend samskipti. Þá verður einnig fjallað um undirbúning næsta stórafmælis UM- FÍ, en samtökin verða sjötug árið 1977. Meginhluti þessa blaðs er að sjálf- sögðu fréttir af 15. landmóti UMFÍ á Akranesi. Hér eru úrslit í öllum keppnis- greinum og frásögn af dagskráratriðum og framkvæmd mótsins. Samsetta mvnd- in í opnu sýnir ýmis ólík augnablik frá landsmótinu. Friðþjófur tók allar mynd- irnar í opnu nema fjöldamyndina efst sem Gunnar Steinn tók. Hjörtur Þórarins- son, form. XJMSB, með landsmóts- fánann að loknu landsmótinu á Akranesi. 4 S K I N FAX I

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.