Skinfaxi - 01.10.1975, Qupperneq 9
Keppni og framkvæmd
Allir sem til þekkja, vita, að það er
ekki létt verk að skipuleggja og fram-
kvæma ke|Dpni með slíkum fjölda ke]5]3-
enda, sem var á landsmótinu. Sett hafði
verið ujíp nákvæm tímaskrá fyrir keppni
í öllum greinum sem fram fóru á ýmsum
keppnissvæðum.
Það verður að segja stjórnendum móts-
ins til verðugs liróss að framkvæmd
keppninnar var með ágætum. Tímaskráin
stóðst svo að segja í einu og öllu, og það
er vel af sér vikið. Starfsmenn og stjóm-
endur mótsins unnu eitt merkilegasta af-
rekið sem unnið var á mótinu. Menn geta
rétt ímyndað sér hvílíkum erfiðleikum og
leiðindum það ylli, ef þessi hlið mótsins
væri ekki í lagi. Eins og fyrr segir, hófst
keppnin á föstudagsmorgun eða degi fyrr
en á fyrri landsmótum og stóð fram á
sunnudagskvöld. Allt gekk létt og liðlega
og engar tafir urðu.
Kepjit var í 24 greinum frjálsíþrótta,
18 sundgreinum, 10 greinum starfsíþrótta,
3 þ)mgdarflokkum í glímu, 5 þyngdar-
flokkum í lyftingum, tveimur aldursflokk-
um í júdó, 5 flokkum í borðtennis og auk
þess , körfuknattleik, handknattleik,
knattspymu, blaki, siglingum og skák.
Sett voru 16 landsmótsmet í frjálsum
íþróttum og 12 í sundi, samtals 28.
Mótsslit
Verðlaunaafhending fór fram á sunnu-
dagskvöld, og var það viðamikil athöfn
sem nærri má geta á svo stóm móti.
Daníel Ágústínusson, forseti bæjarstjórn-
ar Akraness, flutti ávarp. Síðan sleit for-
maður UMFÍ, Hafsteinn Þorvaldsson,
þessu eftirminnilega móti.
UMSK sigraði
Veitt voru fjöldamörg verðlaun að
mótslokum, bæði einstaklingum og sam-
bandsaðilum. Voru verðlaunabikarar
gefnir af fyrirtækjum og einstaklingum á
Akranesi, í Borgarfirði og víðar.
Að lokum var greint frá heildarstiga-
fjölda þátttökuaðilanna og landsmóts-
styttan, sem forseti íslands gaf á sínum
tíma, var afhent fulltrúa sigurvegaranna.
Keppnin um þessi aðalverðlaun var jafn-
ari og tvísýnni en nokkru sinni áður. Mik-
il eftirvænting ríkti þegar úrslit voru til-
kvnnt enda munurinn svo lítill á tveimur
efstu samböndunum að almennt var ekki
ljóst hver væri sigurvegarinn fyrr en það
var tilkynnt. Ungmennasamband Kjalar-
nesþings sigraði, en Héraðssambandið
Skaiphéðinn, sem sigrað hefur á 8 síðustu
landsmótum í röð, varð að láta sér nægja
annað sætið. En tæpt stóð það, — aðeins
þrjú og hálft stig skildu. Heildarúrslit:
1. UMSK ........... 284,5
2. HSK ............ 281,0
3. HSÞ ............ 156,5
4. USK ............ 128,0
5. UMSB ............ 92,5
6. UMSE ............ 76,0
7. HSH ............. 64,0
8. UMFN ............ 51,0
9. UMFK ............ 42,0
10. UMSS ............ 32,0
11. UÍA ............. 31,0
12. HSS ............. 30,5
13. HVÍ ............. 29,0
14. UNÞ ............. 16,0
15. UV ................ U0
16. USÚ ............. 12,0
17. USVS ............ 11,0
18. USAH ............. 9,0
S K I N FAX I
9