Skinfaxi - 01.10.1975, Page 10
HÁTÍÐ
ÆSKUNNAR
Setningarávarp
Hafsteins Þorvaldssonar,
formanns UMFÍ
„Forseti íslands, virðulega forsetafrú,
menntamálaráðherra, bæjarstjórn Akra-
neskaupstaðar, keppendur, starfsmenn,
góðir mótsgestir.
Fyrir hönd Ungmennafélags íslands
býð ég ykkur öll velkomin til þessa 15.
landsmóts UMFÍ sem að þessu sinni er
haklið hér á Akranesi í umsjá UMSB og
Umf. Skipaskaga.
Sérstaklega býð ég velkominn heiðurs-
gest landsmótsins, frú Sigríði Thorlacius,
formann Kvenfélagasambands Islands,
svo og þá erlendu gesti sem með okkur
verða á þessu landsmóti, sýningarflokka
og félagsforustumenn.
I sumar eru 35 ár liðin síðan Sigurður
Greipsson, skólastjóri íþróttaskólans í
Haukadal endurvakti landsmót ung-
mennafélaganna með miklum myndar-
brag heima á föðurleifð sinni í Haukadal
í Biskupstungum. Löngu áður höfðu þrjú
landsmót farið fram, hið fyrsta á Akur-
eyri 1909 og annað og þriðja mótið í
Reykjavík 1911 og 1914. — Frá 1940
hafa landsmótin verið haldin á þriggja
og fjögurra ára fresti og stöðugt vaxið
að umfangi, þátttöku og glæsibrag.
Löngum starfsdegi er nú senn lokið
við undirbúning þessa 15. landsmóts
UMFI hér í heimabyggðum fram-
kvæmdaaðila og hjá ungmennafélögun-
um og héraðssamböndunum um land allt.
Framundan er einskonar úttekt eða svið-
setning og á miklu ríður fyrir okkur öll
að vel takist.
Landsmótsárin renna hvert á eftir öðru
í tímanna rás, en skilja eftir minningar
um starf og unna sigra á vettvangi í-
þrótta- og félagsstarfs.
Fjöldaþátttakan er aðalsmerki lands-
móta UMFÍ, en afrek íjnóttafólksins frá
einu móti til annars bera ótvírætt vitni
hinu íjrróttalega gildi landsmótanna.
Augu alþjóðar munu fylgjast með ]rví
sem gerist hér nú um þessa helgi, þannig
eru landsmótin orðin einskonar þjóðhátíð
10
S KIN FAX I