Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1975, Síða 38

Skinfaxi - 01.10.1975, Síða 38
FRÁBÆR FRAMMISTAÐA LÍTILS FÉLAGS USK varð í 4. sæti á landsmótinu Ungmennafélagið Skipaskagi á Akra- nesi sá um undirbúning og framkvæmd 15. landsmótsins ásamt Ungmennasam- bandi Borgarfjarðar. Það var í mikið ráðist fyrir lítið félag, en það reyndist vandanum vaxið. Umf. Skipaskagi hef- ur vissulega látið til sín taka á lands- mótum UMFÍ fyrr, einkum á Sauðár- króki þar sem félagið hlaut 55 stig. En núna náði félagið fjórða sæti í heildar- stigakeppninni, og hlaut stig í fleiri greinum en nokkru sinni áður. Þetta er stórt afrek lítils félags sem raunar getur ekki talist lítið lengur. Með þess- ari frammistöðu hefur USK áreiðan- lega eflst að mannafla ekki síður en styrk. Að loknu landsmótinu átti Skinfaxi tal við Garðar Óskarsson, formann Umf. Skipaskaga á Akranesi, en félag hans var annar framkvæmdaðili mótsins. — Eg álít að mótið hafi tekist sérstak- lega vel, sagði Garðar, — bæði fyrir keppendur og áhorfendur. Það tókst hins vegar ekki eins vel með fjárhagsafkom- una því að við reiknuðum með meiri að- sókn. Eg er ekki í neinum vafa um að mótið hefur orðið félagi okkar, Borgfirð- ingum og bæjarfélaginu hér til sóma. — Hvaða þýðingu hefur mótið fvrir ungmennafélagið? — Undirbúningsstarfið var strax þýð- ingarmikið fyrir okkur, það jók félags- áhugann. Það reyndist líka auðsótt mál að leita til utanfélagsmanna sem allir vildu rétta okkur hjál]>arhönd. Nú send- um við í fyrsta sinn stóran þátttakenda- hóp í sjálfa kep]>nina. Við lögðum metn- að í að hafa þetta samstilltan og vel bú- inn hóp. Frammistaða keppendanna úr Garð'ar Óskarsson með verðlaunin sem Umf. Skipa- skagi hlaut fyrir myndarlega þátt- töku og framfarir. 38 S KIN FAX I

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.