Skinfaxi - 01.08.1976, Blaðsíða 18
Dagskráin er í stórum dráttum á þá
leið að fyrir hádegi skipti fólk sér í
starfshópa og voru verkefnin að þessu
sinni, þjóðdansar, leiklist, þjóðlaga-
söngur og verkefni eins hópsins hét
einfaldlega „Kynnist íslandi.“
Eftir hádegi voru íþróttir svo sem
knattspyrna, sund og blak, og voru þá
landskeppnir nær daglegur viðburöur,
en einnig var föndur á þessum tíua
fyrir þá sem vildu og var þar unnið úr
íslensgri ull, og gerðar kembdar vegg-
myndir. Þá var hestaleiga á staðnum
og var það afar vinsælt.
Kvöldin voru skipulögð þannig að
þá voru kvöldvökur þar sem ýmislegt
var á boðstólum; löndin eða starfs-
hóparnir komu hvert með sinn dag-
skrárþátt, og á einni var kynning á
UMFÍ og okkar starfi en þar var m. a.
sýnd Landsmótskvikmynd. Víkverjar
sýndu glímu og Umf. íslendingur
sýndi þjóðdansa.
Þetta er nú í stórum dráttum skipu-
lag vikunnar, en eins og nærri má geta
var oft glatt á hjalla og þá fundið upp
á ýmsu fyrir utan það sem á dag-
skránni var. Skoðanaferðir um ná-
grennið kunnu gestirnir vel að meta
enda var staðsetning vikunnar einkar
heppileg með slíkt í huga.
Alls sóttu þessa viku 80 erlendir
gestir og 12 íslenskir ungmennafélag-
ar. Ég ætla ekki að fara að rifja upp
einstök skemmtileg atvik eða þætti
enda færi betur á að aðrir gerðu það
en ég, en vil að lokum færa öllum, sem
hjálpuðu okkur með að gera þessa
daga ógleymanlega, okkar bestu þakk-
ir.
Sig. Geirdal.
MYNDASYRPAN í OPNUNNI sýnir ýmsar
svipmyndir í starfi skemmtunum og ferða-
lögum á Norrænu ungmennavikunni í sumar.
KVEÐJA
FRÁ DÖNSKUM
ÞÁTTTAK AN D A
Kæru félagar í UMPÍ.
Undirrituð sendir kveðjur og
bestu þakkir til ykkar allra, sem
voru virkir þátttakendur í „Norr-
ænu ungmennavikunni“ á Flúðum
dagana 26. júli til 1. ágúst 1976.
Það var dásamlegt að hittast aft-
ur og ég þakka fyrir ykkar þátt í
því að gera vikuna eins ógleyman-
lega og raunin varð fyrir okkur öll.
Þið voruð gestgjafar í orðsins
bestu merkingu og þolgæði ykkar
með eindæmum.
Ég vil einnig þakka fyrir samver-
una dagana eftir „vikuna“ og það
sem þið þá gerðuð fyrir okkur.
Við sáum og upplifðum margt hjá
ykkur, sem seint mun gleymast.
ísland var óviðjafnanlegt — okkur
langar öll til að koma aftur:
Hafið þökk,
kveðjur.
Karen Bjerre Madsen.
-------------------------------------/
18
SKINFAXI