Skinfaxi - 01.04.1977, Síða 3
SKINFAXI
Ritstjóri og ábyrgðarm.: Gunnar Kristjánsson. — Út koma 6 hefti á ári.
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXVIII. árgangur — 2. hefti 1977
Baráttan gegn reykingum
Öflug vakning fer nú sem eldur í sinu
um byggðir landsins, baráttan gegn reyk-
ingum virðist farin að bera árangur.
Hinn markvissi áróður í fjölmiðlum á
vafalaust stærstan þátt í þeim árangri sem
þegar hefur náðst. Er það vel þegar tekst
að beina áróðursvopninu inn á þær braut-
ir sem varða heill og velferð mannkyns-
ins.
Augu reykingarmannsins hafa í vaxandi
mæli opnast fyrir því að þeir sem ekki
reykja eiga einnig sinn rétt. Á fjölmennu
þingi sem ég sat fyrir skömmu kom fram
tillaga þess efnis, að reykingar væru ekki
leyfðar meðan á fundi stæði, var hún sam-
þykkt mótatkvæðalaust.
Ég er í engum vafa um að þar var hluti
af árangri herferðarinnar gegn reykingum
að líta dagsins Ijós.
Enda þótt slíkur árangur sé í alla staði
mjög ánægjulegur er enn ánægjulegra
hvernig andstaðan gegn reykingum hefur
i vaxandi mæli náð að hljóta stuðning
skólaæskunnar.
Þar er um fyrirbyggjandi aðgerðir að
ræða sem alltaf hljóta að vega þyngst á
metunum.
Um leið og augu almennings hafa opn-
ast fyrir þeirri hættu sem reykingar hafa
í för með sér, hefur áhuginn fyrir almenn-
ingsíþróttum farið vaxandi er það vel
þegar tveir jafn veigamikilir þættir fara
saman. En ekki dugir að nema hér staðar,
hamra verður járnið meðan það er heitt,
og allt bendir til þess að hér verði ekkert
lát á a. m. k. fyrst um sinn.
Ungmennafélag Islands og iþróttasam-
band íslands eru nú í samvinnu við Æsku-
lýðsráð ríkisins að láta útbúa veggspjöld
sem eiga að vera þáttur íþrótta- og æsku-
lýðssamtaka landsins í framlagi þeirra til
baráttunnar gegn reykingarbölinu.
Það hlýtur því að vera augljós skylda
allra þeirra sem að íþrótta- og æskulýðs-
málum vinna að leggja hér þarfa hönd á
plóginn.
G.K.
SKINFAXI
3