Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1977, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.04.1977, Blaðsíða 14
Og hraði var víðar en í skákinni svo sem á hraðmóti í körfubolta er var meðal viðfangsefna UMSS í vetur. Að lokum má geta nýstárlegrar keppni sem fram fór á Sauðárkróki í tilefni nýlokinna malbikunarfram- kvæmda. Var það reiðhjólakeppni með þátttöku 50 barna og unglinga á aldrinum 6—14 ára. Hjóluðu þau yngstu 700 m en þau eldri 1400 m. Síðast en ekki síst er vert að geta þess að Skagfirðingar hafa eignast sína fyrstu skíðalyftu. Var skíðalyfta þessi, sem staðsett er í Kúagili, gefin Umf. Tindastóli í tilefni 70 ára af- mælis þess, af Lionsklúbbi Sauðár- króks. Af framan greindu má sjá að í nógu hefur verið að snúast hjá þeim Skag- firðingum í vetur. Formaður UMSS er Gestur Þor- steinsson Sauðárkróki. Ungó í sínu gamla hlutverki Félagsheimilinu Ungó hefur nú verið breytt í íþróttahús, eru í húsinu tveir salir, annar 18x9 m og hinn 15x6 m. Breytingu þessa má rekja til þess hve rekstur þess sem félagsheimilis hefur gengið illa, enda í harðri sam- keppni við félagsheimilið Stapa. Einn- ig hafði tilfinnanlegur skortur íþrótta- húsnæðis sitt að segja. Ungó eða ungmennafélagshúsið hef- ur verið í eigu Ungmennafélags Kefla- víkur síðan 1936. Var það í fyrstu not- að jafnhliða sem íþrótta- og sam- komuhús en síðan nær eingöngu sem danshús. Árið 1950 var bætt við húsið og hafði þáverandi formaður UMFK Hólmgeir Guðmundsson veg og vanda af þeirri framkvæmd. Breytingar þær sem nú hafa verið gerðar eru allkostnaðarsamar og hlýt- ur sá kostnaður að vera félaginu tölu- verður baggi, þó að á móti komi leiga fyrir afnot þess við íþróttakennslu. Heildarkostnaður við breytingarnar er á bilinu 7—8 millj. er þó um all- mikla sjálfboðavinnu að ræða, eða því sem næst andvirði einnar milljónar. Ungmennafélagið heiðraði Sæmund Valdimarsson fyrir stærst framlag sjálfboðavinnu. Var honum færð áletruð bók í viðurkenningarskyni í hófi sem haldið var er húsið var tekið í notkun. Enginn vafi er á því að tilkoma þessara íþróttasala leysir töluvert úr þeim vanda sem Keflvíkingar hafa átt við að etja í íþróttakennslumálum, þótt hér sé aðeins um tímabundna lausn að ræða. Er því greinilegt að Keflvísk æska stendur í þakkarskuld við stórhuga forustumenn UMFK. 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.