Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1977, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.04.1977, Blaðsíða 6
félag sem flest stig hlýtur úr mótum UMSE samanlagt. Einnig hlaut Umf. Skriðuhrepps Félagsmálabikar UMSE fyrir öflugt félagsstarf. Á þinginu sæmdi Hafsteinn Þor- valdsson form. UMFÍ þá Pál Garðars- son og Birgi Þórðarson starfsmerki UMFÍ. í stjórn sambandsins voru kjömir: Haukur Steindórsson form., Magnús Kristinsson ritari, Jóhannes G. Sig- urgeirsson gjaldk., Birgir Jónasson varaform. og Vilhjálmur Björnsson meðstjórnandi. Þóroddur Jóhannsson, sem verið hefur í starfi hjá UMSE í 20 ár, fyrstu 7 árin sem formaður, en síðan sem frkvstj. þess, lætur nú af starfi frkvstj. en við tekur Halldór Sigurðsson kenn- ari við Þelamerkurskóla. Ársþing héraðssambands Suður-Þingeyinga 64. ársþing HSÞ var haldið í félags- heimilinu Sólvangi Tjörnesi 30 apríl og 1. maí sl. Á þingið mættu 33 full- trúar frá 12 aðildarfélögum. Gestir þingsins voru Sveinn Björnsson vara- forseti ÍSÍ, Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri ÍSÍ, Hafsteinn Þor- valdsson formaður UMFÍ og Sigurður Geirdal framkvæmdastjóri UMFÍ. Halldór Valdimarsson flutti skýrslu stjórnar og kom þar fram að starf HSÞ var allumsvifamikið á árinu. Sambandið hafði tvo launaða starfs- krafta á sínum snærum, þá Arnald Bjarnason framkvæmdastjóra og Hjört Einarsson íþróttakennara,starf- aði hann sem þjálfari á vegum sam- bandsins sl. sumar. í skýrslu formanns kom fram að þessir starfskraftar hafi nýttst sambandinu mjög vel og störf þeirra borið ríkulegan ávöxt. Á sam- bandssvæði HSÞ eru nú stundaðar flestar þær íþróttagreinar sem eru keppnisgreinar í dag, og þar er eitt helzta höfuðvígi íslenzku glímunnar en íslandsgliman var einmitt háð á Húsavík á iaugardeginum, áður en þing hófst. Á þinginu kom fram megnasta óánægja með það hversu fáir sunnan- menn höfðu mætt til keppni, svo og hve stjórn Glímusambandsins hafði sýnt mótinu lítinn áhuga. Hér sést hluti þingfull- trúa á 64. ársþingi HSÞ. (Ljósm. Sig.G) 6 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.