Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1977, Page 4

Skinfaxi - 01.04.1977, Page 4
Starfs- kraftur kveður Lilja Steingrímsdóttir (Ljósm. Sig.G) Síðastliðið ár hefur Lilja Stein- grímsdóttir unnið í skrifstofu UMFÍ. Lilja lét af þeim störfum nú í byrjun maí og hafði þá starfað þar í tæpt ár. Skinfaxi flytur Lilju sínar bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf. Lofað upp í ermina í siðasta tölublaði, lofaði ég því að þetta blað kæmi út í maí, sem betur fer fyrir mig var það loforð birt á litt áberandi stað. Þar sem spásagnargáfa mín er ekki nokkur í samanburði við „Völvu Vikunnar“ renndi ég að sjálf- sögðu ekki í grun um að aðgerðir til bættra lífskjara kynnu að hafa þau áhrif að loforð mín féllu sem ógild væru, en sú hefur þó orðið raunin og er lítt við því að gera annað en að biðjast forláts og lofa upp á nýtt. Héraðssambönd kynnt í tilefni 70 ára afmælis UMFÍ á þessu ári mun Skinfaxi kynna merki Héraðssambanda og Ungmennafélaga með beina aðild nú og í næstu blöðum. Þá er þeim eindregnu tilmælum beint til þeirra sem ekki hafa enn eignast sitt merki að láta nú til skarar skríða á afmælisárinu. Sjá bls. 6. Maður í manns stað Skrifstofunni hefur bætst nýr starfskraftur i stað Lilju Steingrims- dóttur, Anna Kristín Jóhannsdóttir heitir hún. Anna Kristín stundar nám við Menntaskólann í Reykjavík, og munum við þar af leiðandi ekki njóta starfskrafta hennar nema sumarmán- uðina fram til 1. sept. Skinfaxi býður Önnu velkomna til starfa. Sumarkveðja Skinfaxi óskar lesendum sínum gleðilegs sumars, og lætur í von þá ósk að í kjölfar hagstæðs vetrar fylgi sólríkt og gott sumar. 4 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.