Skinfaxi - 01.04.1977, Page 7
Amaldur
Bjarnason.
Allmiklar umræður spunnust um
Laugahátíð, sumarhátíð þeirra Þing-
eyinga og framtið hennar. Þá kom
fram að HSÞ mun á sumri komandi
taka á móti 50 manna hópi frá Ung-
mennasambandi Hróarskeldu.
Á þinginu sæmdi Hafsteinn Þor-
valdsson formaður UMFÍ þá Þormóð
Jónsson formann Völsungs og Vil-
hj álm Pálsson íþróttakennara á Húsa-
vík starfsmerki UMFÍ.
Tilkynnt var um kjör íþróttamanns
ársins, þann titil hlaut Ingvi Þ. Ingva-
son glímukappi. Er þetta í annað sinn,
sem Ingvi hlýtur þennan titil.
Stjórn HSÞ er nú þannig skipuð:
Formaður Þormóður Ásvaldsson, ritari
Jón Illugason, gjaldkeri Völundur
Hermóðsson, varaformaður Baldvin
Kr. Baldvinsson, meðstjórnendur
Kristleifur Meldal, Jón Fr. Benónýs-
son og Arnór Erlingsson.
Arnaldur Bjarnason verður fram-
kvæmdastjóri sambandsins fram í
miðjan júní nk.
Keppendur í Íslandsglímunni á Húsavík 31.
apríl 1977 ganga fylktu liði úr salnum að Iok-
inni keppni. Fremstur fer Guðmundur Freyr
Halldórsson og er hann jafnframt fánaberi
en Guðmundur er gjarnan í því hlutverki við
tækifæri sem þessi, ferst honum það jafnan
vel úr hendi. Næstur honum fer Ingvi Þór
gyrtur Grettisbeltinu sigurverðlaunum fs-
landsglímunnar. Þar næst bróðir hans Pétur
Ingvason síðan Ilaukur Pétursson þá þriðji
bróðirinn Kristján Ingvason og síðast kemur
Guðmundur Ólafsson Ármanni sem því mið-
ur sést ekki nema að hálfu á þessari mynd.
Bræðurnir þrír eru sem kunnugt er allir úr
S-Þingeyjarsýslu. Á þingi HSÞ höfðu menn
á orði að vildi einhver krækja í Grettisbeltið
yrði sá hinn sami að sækja það norður.
(Ljósm. Sig.G)
SKINFAXI
7