Skinfaxi - 01.04.1977, Page 8
„ ÍSLAND SKAL FRJÁLST Á MEÐAN
ÞÚ LIFIR”
Á þeirri skálmöld spillingar og öng-
þveitis, sem ríkir í okkar landi, verða
menn æ gleymnari á þær hugsjónir,
sem aldamótakynslóðin fóstraði með
sér. Sú kynslóð átti sér þá „óraunsæju
draumóra“ að ísland skyldi frjálst og
íslendingar skyldu hjálpa sér sjálfir
út úr þeirri fátækt og niðurlægingu
sem lá í landi. Sú kynslóð vann vel,
og undir kjörorðinu „íslandi allt“
breytti hún íslandi úr kúgaðri hjá-
lendu í fullvalda ríki og lyfti þjóðinni
frá örbyrgð til bjargálna. Með árvökr-
um huga sem aldrei missti sjónar á
markmiðinu gerði hún byltingu á ís-
landi.
íslenska lýðveldið var stofnað í
hringiðu stríðsgróðans. Stríðið leiddi
ísland undir verndarvæng stórveldis-
ins vestan Atlantshafsins og færði
landsmönnum digrari sjóði en áður
höfðu sést í landinu. Ný kynslóð settist
að völdum með ný viðhorf. Þau verð-
mæti sem mest voru virt af aldamóta-
mönnum, manngildi og þjóðleg reisn,
féllu í skuggann fyrir peningastreði, —
nýtt þjóðfélag tók á sig mynd með
stærstu þjóðflutningum í íslandssög-
unni, frá byggðum landsins á dálítinn
blett á suðvesturhorninu. Sjómenn
drógu þorsk úr sjó, sem stórveldið ríka
keypti síðan háu verði. Og lét ekki þar
við sitja, heldur færði þjóðinni rausn-
argjafir kenndar við Marshall — og
kynnti henni um leið ýmsan glæsileg-
an varning og gerði gylliboð um hlut-
deild í allsnægtunum vestanhafs.
Ekki þótti nema sjálfsagt að hýsa
herstöð þessa gjafmilda stórveldis, og
þótt ýmsir mögluðu og töluðu um
landssölu voru slíkar raddir bældar og
bent á Rússagrýlu í austri. Framfarir
og velmegun voru orð dagsins. Jó-
hannes úr Kötlum bregður upp mynd
af hinu nýja þjóðfélagi í „Óðnum um
oss og börn vor“:
Ó þér veltiár velferðarríkis
íslands þúsund árum gjöfulli í tíma
og rúmi
Hvert og eitt heil öld nýrrar reynslu
Hvert og eitt heil veröld nýrra
möguleika
Þér ár sem gerðuð blóð og tár hinna
ósýnilegu
Að dreggjum niðurlægingarinnar
í bikurum vorum
Hvílík ár hvílík sjálfgleymisár.
í þessi sjálfgleymisár hefur þjóðin
lifað hátt og lítt sést fyrir i þeirri trú
að aldrei komi að skuldadögum. En
smátt og smátt tók að koma í ljós á
hve veikum grunni þetta nýja velferð-
arríki var byggt. Sjómenn og fisk-
vinnslufólk sem ekki hafði flutt í höf-
uðborgina skapaði þjóðinni gjaldeyris-
tekjur, en í höfuðstaðnum sýslaði fólk
við verslun, bankarekstur og margvís-
lega þjónustu við sjálft sig og aðra.
8
SKINFAXI