Skinfaxi - 01.04.1977, Qupperneq 13
10. þing Æskulýðssambands íslands
var haldið á Loftleiðahótelinu 30.
apríl ’77
A þinginu voru samþykktar veiga-
miklar breytingar á lögum sambands-
ins í þá átt að í stað utanríkisnefndar
og sambandsstjórnar verði aðeins
sambandsstjórn. Ástæðan til þessarar
breytingar er m.a. sú, að það starf sem
fram hefur farið á vegum Æskulýðs-
sambandsins hefur að langmestu leyti
beinst að erlendum samskiptum þann-
ig að sú tvískipting sem verið hafði við
stjórnunina var orðin óþörf.
Fyrir nokkrum árum stóð allmikill
styrr um starfsemi Sambandsins, það
þykir því rétt að birta hér kafla úr
lögum þess sem kveður á um markmið
þess, en þar segir í 2. grein.
Markmið Æskulýðssambands ís-
lands er: að efla samstarf og kynn-
ingu meðal íslenskra æskulýðsfélaga,
að koma fram sem fulltrúi þeirra á
erlendum vettvangi, að starfa i anda
Mannréttindaskrár sameinuðu þjóð-
anna og hafa vinsamleg samskipti við
æskulýðssamtök hvar sem er í heim-
inum, að vinna að alþjóðlegum bar-
áttumálum ungs fólks.
Æ.S.Í. hefur nú 12 aðildarsambönd
innan sinna vébanda sem öll eiga full-
trúa í sambandsstjórn.
Formaður þess var kjörinn Elías
Snæland Jónsson.
Gestur Þorsteins-
son form. UMSS.
(Ljósm. Sig.G)
í nógu að snúast hjá UMSS
Af nýútkomnu fréttabréfi Ung-
mennasambands Skagafjarðar má
greinilega ráða að starfsemi þess er
öll að færast í aukana. Haldin hafa
verið félagsmálanámskeið undirstjórn
Guðmundar Gunnarssonar, sem er
framkvstj. að hluta hjá sambandinu.
Hleypt var af stað spurningakeppni
milli sveitarstjórna, hefur sú keppni
gengið vel og snurðulaust fyrir sig.
Til fjáröflunar settu þeir Héraðs-
bingó í gang, skilaði það fyrirtæki
hagnaði, þó ekki yrði hann eins mikill
eins og vonir stóðu til.
í skákinni hefur verið nóg að gera,
2 hraðskákmót hafa verið haldin, svo
og sveitakeppni og jólamót. Á fyrra
hraðskákmótinu bar Gunnar Skarp-
héðinsson sigur úr býtum, en á því
síðara varð Eyþór Hauksson hlut-
skarpastur með 8 vinninga af 9 mögu-
legum. í sveitakeppninni sigraði sveit
Varmahlíðar en hún hlaut 15 vinn-
inga, í öðru sæti varð sveit Umf.
Tindastóls með 13,5 vinninga.
SKINFAXI
13