Skinfaxi - 01.04.1977, Page 15
Þetta er nokkuð merkilegt (Ljósm. Sig.G)
UMFÍ kynning í íþrótta-
kennaraskóla íslands—
Laugarvatni
Hafsteinn Þorvaldsson formaður og
Sigurður Geirdal framkvæmdastjóri
UMFÍ brugðu sér á Laugarvatn í apríl-
mánuði sl., þar sem þeir kynntu til-
vonandi íþróttakennurum starfsemi
UMFÍ.
Kynning þessi tókst í alla staði mjög
vel, voru ungmennin áhugasöm og
spurðu mikið um störf og stefnu
UMFÍ.
Kynning sem þessi er mjög gagnleg
ekki síst þeim sem koma til með að
starfa í tengslum við Ungmennafé-
lagshreyfinguna, eins og raun hefur
orðið á með íþróttakennara á undan-
förnum árum, en mjög margir þeirra
hafa ráðið sig sem þjálfara hjá hér-
aðssamböndum út um landsbyggðina.
Meðfylgjandi myndir eru frá heim-
sókninni í íþróttakennaraskólann.
Hafsteinn þylur yfir ungmennunum.
(Ljósm. Sig.G)
SKINFAXI
15