Skinfaxi - 01.06.1977, Page 3
«
Ritstjóri og ábyrgðarm.: Gunnar Kristjánsson. — Út koma 6 hefti á ári.
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXVIII. árgangur— 3. hefti 1977
Landsmót UMFÍ
Allt frá því að Sigurður Greipsson
endurvakti Landsmót UMFÍ í Hauka-
dal 1940 hafa þau verið haldin reglu-
lega með þriggja til fjögurra ára
millibili. Landsmótin hafa verið eins
og stórar lýsandi perlur í starfskeðju
liðinna ára. Þau hafa í senn verið
samnefnari þess starfs sem unnið er
í ungmennafélögunum á árunum
milli þeirra og vottur þess hvað hægt
er að gera með samstilltu átaki þar
sem keppnin skipar hæfilegan sess
en fagurt samstarf i sýningaratrið-
um, dans og leikir hinsvegar mikið
rúm.
Þessi perlukeðja hefur vaxið að um-
fangi og styrkleika með árunum og
Landsmótin að sama skapi. Á Hauka-
dalsmótinu er talið að verið hafi 73
keppendur og mótsgestir á annað þús-
und. Síðan hefur fjöldi þátttakenda
vaxið með hverju móti hröðum skref-
um, þannig að á síðustu Landsmótum
hafa þátttakendur verið hátt á annað
þúsund en mótsgestir skipt þúsund-
um.
Um það má deila hvort Landsmótin
eigi að vera árlegur viðburður eða með
enn lengra millibili en nú er. Ýmis
rök er hægt að færa fyrir báðum
þessum sjónarmiðum. um hitt verð-
ur ekki deilt að Landsmótin hafa kall-
að fram sífellt aukið starf hjá félög-
unum á íþrótta sem og hinu félags-
lega sviði. Með þessu starfi hafa ein-
staklingar öðlast aukinn þroska á
flestum sviðum mannlegs lífs, en ein-
mitt það er kjarni og stefnumið ung-
mennafélagshreyfingarinnar.
Enn er stefnan tekin á næsta
Landsmót sem haldið verður á Sel-
fossi á næsta sumri. Undirbúningur
að þátttöku í því er að vísu löngu haf-
inn. Hann hófst þegar 15. Landsmót-
inu var slitið á Akranesi 13. júlí 1975.
Um þessar mundir er hinsvegar mótið
sjálft að hefjast með undanrásum í
knattleikjum út um landið.
Allar líkur eru á að 16. Landsmótið
fylgi í kjölfar allra hinna með auknu
fjölmenni og fjölbreytni og er það
vel. Á meðan Landsmótin sýna aukið
starf, aukinn þrótt félaganna, eiga
þau að vaxa í höndum hreyfingar-
innar, og á meðan svo er, verða þau
framkvæmd með menningar- og
myndarbrag, þrátt fyrir aukin skipu-
lagsvandamál vegna nýrra keppnis-
greina og fjölmennis.
Mestu máli skiptir að þau verði
aldrei fölsk mynd af starfinu og hald-
in sakir hefðar en ekki af þörf.
Guðjón Ingimundarson.
SKINFAXI
3