Skinfaxi - 01.06.1977, Page 15
Danskir sparisjóðir verð-
launa dugmikla forystumenn
í Danmörku, nánar tiltekið á Norð-
ur-Jótlandi er til samvinnunefnd
sparisjóða. Nefnd þessi hefur það
hlutverk með höndum að veita dug-
miklum íþróttaleiðtogum styrk, til
þess að þeir eigi þess kost að sækja
námskeið eða á annan hátt að auka
við þekkingu sina á sviði iþrótta- og
félagsmála. Þetta er í þriðja sinn sem
slíkir styrkir eru veittir en þrír for-
ystumenn hljóta hann í hvert sinn.
Styrkupphæðin í ár var 5000 kr.
danskar eða rúmlega 150 þús. íslensk-
ar.
Styrkina hlutu í þetta sinn Magna
Anderssen Álaborg, Erik Christians-
sen Álaborg og Birgit Larsen Höbro.
Þessi frétt sem birtist i síðasta tbl.
DDGU sem er blað danska ungmenna-
og fimleikasambandsins, er birt hér
til þess að undirstrika hversu langt
við íslendingar eigum enn í land með
að styrkja og efla hina frjálsu félaga-
starfsemi í landinu.
Frá USAH
Ungmennasamband Austur-Húna-
vatnssýslu sendi nýlega frá sér frétta-
bréf þar sem greint er ítarlega frá
helstu verkefnum sambandsins á
sumrinu.
í fréttabréfinu kemur fram að
USAH er stór aðili í hátíðahöldum
þjóðhátíðardagsins á Blöndósi og sér
m.a. um keppni í frjálsum íþróttum,
skemmtiatriðum og dansleiki.
Af öðrum verkefnum sambandsins
kemur fram að USAH gengst fyrir
Ungmennabúðum í sumar. Er þetta í
fyrsta sinn sem slík starfsemi fer
fram á vegum sambandsins.
Á ungmennabúðunum gefst þátt-
takendum kostur á að læra sund og
ýmsar aðrar íþróttir, fara í leiki, fjall-
göngur og jafnvel á hestbak.
Frjálsíþróttafólks bíða mörg mót á
sumrinu og til þess að sem bestir
árangrar náist hefur sambandið þrjá
þjálfara á sínum snærum, einn á
Blönduósi, annan á Skagaströnd og
hinn þriðja í sveitunum. Auk móta
innan héraðs s.s. unglinga og héraðs-
mót tekur frj álsíþróttafólk frá USAH
þátt í fjölda móta utan héraðs.
Knattspyrnumenn hafa í mörg
horn að líta og hafa því þjálfara sér
til aðstoðar. Tekur liðið m.a. þátt í 3.
deild og undanrásum knattspyrnu
fyrir I,andsmót UMFÍ.
í sundi verður héraðsmót en auk
þess keppni við Vestur-Húnvetninga.
Fór slík keppni í fyrsta sinn fram í
fyrrasumar og lauk þá með naumum
sigri Vestur-Húnvetninga.
SKINFAXI
15