Skinfaxi - 01.06.1977, Side 21
í einfaldleika sínum. En ég tel að
málið sé ekki svona einfalt.
Megintilgangur með stofnun hreyf-
ingarinnar hlýtur að hafa verið
sá að efla félagsþroska þjóðarinn-
ar. Þannig er ungmennahreyfingin
grundvöllur fyrir öllu félagsstarfi í
landinu.
Á hvaða stigi er svo félagsþroski
þjóðarinnar í dag?
Mér er nær að halda að ástandið
í þeim málum gæti verið æskilegra.
Starfsemi skólakerfis og fjölmiðla,
þessara afkvæma hugsjónanna, hefur
verið með þeim eindæmum að í dag
sjá sárafáir íslendingar sér hag í því
að starfa að félagsmálum, nema þá
að í staðinn komi von um gott starf,
mannaforráð eða peningagróða helst
skjótfenginn.
Mér er nær að halda að lýðurinn sé
að fara í órækt, hafi hann nokkurn
tíma borið sitt barr.
Það er aldeilis kominn tími til að
reynt sé að efla félagshyggju í þjóð-
arsálinni, það eitt gæti orðið hinum
hálfblinda þjóðarlíkama til bjargar.
Það er ekki nóg að fóðra fólkið á
upplýsingum um atburði, sem gerðust
í fyrndinni og höfðu e.t.v. áhrif á
gang mannskynssögunnar.
Það er ekkert lokatakmark að allir
viti hvaða vörutegund henti best til
hinna ýmsu þarfa nýja tímans.
Hverju erum við bættari af þvi að
kynnast störfum atvinnumorðingja
og glæpamanna í fortíð og nútíð?
Og hversu fátæk verðum við ekki
af andlegum auði, ef að bókstaflega
allar upplýsingar, sem á okkur dynja
sýknt og heilagt eiga einungis að færa
okkur heim sanninn um það á hvern
hátt við getum komist af sem ein-
staklingar, ef við fáum ekkert að vita
um það á hvern hátt við ættum að
umgangast náungann, þannig að allir
hafi gagn og ánægju af.
Við þurfum ekki nema að líta á
félagsstarfsemina í landinu til að sjá
afleiðingarnar.
Sá sem kallaður er til forystu í ein-
hverju frjálsu félagi og gegnir því
kalli er í sannleika sagt ekki öfunds-
verður. Hann hefur þar með kallað
það yfir sig að vera úthrópaður sem
hin mesta liðleskja á vettvangi félags-
mála, ef hann starfar ekki hörðum
höndum fyrir sitt félag mest allan
sinn frítíma.
Forystumenn félaga eru í raun
þrælar þeirra, en ekki stjórnendur.
Geri hinn óhamingjusami forystu-
maður veikburða tilraun til að virkja
til starfa óbreyttan félagsmann, er
æpt á móti: Heyrðu góði, þetta átt þú
að sjá um, þú ert í stjórn!
Og ekki batnar ástandið ef kallaður
er saman fundur um mál sem varðar
félagið og þar með hvern einasta fé-
lagsmann.
Ef verður á annað borð fundarfært,
mæta einungis á fundinn aðalmenn í
stjórn, og ef til vill nokkrir óbreyttir
félagsmenn, sjaldnast til að taka þátt
í störfum fundarins nei, heldur til að
híma úti í horni, ábyrgðarlausir, e.t.v.
hugsandi um það hvernig þeir eigi nú
að fara að því að borga nýja bílinn,
sem þeir keyptu á dögunum. Ef stung-
ið er upp á slíkum mönnum til for-
ystustarfa, kippast þeir við sem harð-
ast, og afsakanir og undanbrögðin
SKINFAXI
21