Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1978, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.06.1978, Blaðsíða 5
smávægilegra endurbóta á íþróttavellinum en ungmennafélagar úr Umf. Selfoss ætla að sjá um að girða af íþróttavöllinn til þess að landsmótanefnd eigi auðveldara með að selja inn á hann. Nokkurt annað fyrir- komulag verður á aðgangssölu en tíðkast hefur, því ákveðið hefur verið að selja inn á hvert svæði á þann hátt að miðinn gildir fyrir ákveðið tímabil í senn, en auk þess verður unnt að fá miða sem gildir alls staðar yfir allt tímabilið. Fyrirkomulag sem þetta gefur áhorfendum möguleika á þvi að sjá það sem óskað er eftir, án þess að þurfa að greiða fyrir heildarprógrammið. Mótið verður að standa undir sér Guðmundur taldi góða möguleika á því að landsmótið stæði fjárhagslega undir sér og sagði að ef það væri ekki hægt á Selfossi nú, væri það hvergi hægt, öll aðstaða væri lögð til af sveitarfélaginu nema hreinlætis- aðstaða í tjaldbúðum, sem lenti þá á lands- ▼ Viö sundlaugina er malbikað svæöi, þar sem hægt cr aö stunda tennis og fleiri boltaiþróttir. mótanefnd að kosta en aðrir liðir væru ekki það stórvægilegir að ekki væri hægt að mæta þeim en þar væri stærsti liðurinn verðlaunakaup. Landsmótanefnd hyggst mæta þessum útgjöldum með sölu á minja- gripum, svo sem fánum, plöttum (vegg- skjöldum), barmmerkjum og landsmóta- bolum auk aðgangseyris. Tjaldbúöir keppenda veröa nokkurt vandamál Guðmundur kvað nokkurt vandamál vera að staðsetja tjaldbúðir keppenda sem haganlegast hvað fjarlægð og næði snerti, til greina kæmi að þau yrðu til hliðar við íþróttavöllinn þar sem nú væri eitt moldar- flag en sérfræðingar í landgræðslumálum hefðu fullyrt að í þetta moldarflag mætti sá einæru grasfræi sem tæki það fljótt við sér að það yrði undir það búið að taka við tjaldbúðum á landsmóti. Guðmundur kvaðst þó vera hálf rangur við að treysta því, en allavega yrði reynt að leysa þetta mál á sem frasælastan máta. Frá svefn- (Jti og innilaug hliö viö hliö. Útilaugin 25 m löng verður keppnislaugin á landsmóti. SKINFAXI 5

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.