Skinfaxi - 01.06.1978, Side 8
greina kemur i þvi sambandi er m.a. úr-
lausn ýmissa þrauta, s.s. að ákvarða lengd
hluta eða þyngd án mælitækja, leysa
reikningsdæmi í huganum o. fl. o. fl. Ekki
verður keppendum leyft að nota ótak-
markaðan tíma til þess að komast hringinn
og því var það að einum stjórnarmanna
HSK varð að orði er hann leitaði í huga sér
að mönnum, sem liklegir væru til að taka
þátt í þessari grein, að „þeir þyrftu að vera
léttfættir og handlagnir vitamenn”. Ná-
kvæmlega verður ekki gefið upp hvaða
þrautir keppendur koma til með að leysa
fyrr en á landsmóti þannig að ekki verður
auðvelt fyrir væntanlega keppendur að
þjálfa sig fyrir starfshlaupið. Það verður án
efa forvitnilegt að fylgjast með þessari nýju
grein starfsíþrótta á landsmótinu.
Stjórnendur
íþróttagreina.
Ákveðnir umsjónarmenn eða stjórn-
endur verða fyrir hverja þá grein sem keppt
verður í á landsmótinu það hefur oftast
tiðkast hingað til og jafnan þótt gefast vel.
Stjórnendur eftirtalinna greina verða
þessir:
Frjálsariþr.
Sigurður Helgason, Digranesvegi 14, S. 91—44042
Kópavogi
Sund
Hörður S. Óskarsson, Engjavegi 42, S. 99—1868
Selfossi
Knattspyrna
Jón H. Sigurmundss., Selvogsbraut S. 99—3820.
31,Þorláksh.
Handknattl.
Halldóra Gunnarsd. Skólavöllum 7, S. 99—1127
Selfossi
Glima
Kjartan Bergmann, Bragagötu 30, |S. 91—21911
Rvk.
Blak
Gunnar Árnason, Efstahjalla 25, Rvk. S. 91—44758
Júdó
Eysteinn Þorvaldss., Háaleitisbraut S.91—83855
36, Rvk.
Skák
Þórhallur Ólafsson, Laufskógum 19, S. 99—4323
Hverag.
Fimleikar
Hulda Gunnlaugsd., Stekkholti 20, S. 99—1744
Self.
Körfuknattl.
Einar Bollason, Hlíðarvegi 38, S. 91—43420
Kópavogi
Borðtennis
Gunnar Jóhannsson, Laugavegi 39, 91—19895
Rvk.
Dráttarvélaakstur
Karl Gunnlaugsson, Varmalæk, Hrun. S. 99—6621
Hestadómar
Steingrimur Viktors., Fossheiði 12, S. 99—1809
Self.
Jurtagreining
Axel Magnússon, Rcykjum S.99—4121
Lagt á borð
Halla Guðmundsd., Miðengi 3, S. 99—1922
Selfossi
Linubeiting
Leif Österby, Háeyrarvöllum 30, S. 99—3372
Selfossi
Hversu margirveröa á landsmótinu?
Við spurðum Guðmund að því hvort
hann gæti gert sér í hugarlund hver yrði
fjöldi keppenda á landsmótinu. Taldi hann
að búast mætti við 13—1500 keppendum,
um áhorfendur var hann tregur að spá en
kvaðst þó gera sér vonir um að þeir yrðu á
bilinu 10—15 þúsund. Fjöldi þeirra væri
náttúrlega mjög svo háður því hvernig
veðrið yrði landsmótsdagana.
8
SKINFAXI